2009-03-20 09:54:39 CET

2009-03-20 09:55:44 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Ársreikningur

Ársreikningur Íbúðalánasjóðs fyrir árið 2008


Tap af rekstri sjóðsins nam 6.904 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið
fé hans í árslok var 13.285 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
Eiginfjárhlutfall sjóðsins sem reiknað er samkvæmt ákvæðum í reglugerð nr.
544/2004 um Íbúðalánasjóð er 4.6%. Hlutfallið er reiknað með sama hætti og
eiginfjárhlutfall fjármálafyrirtækja. Langtímamarkmið sjóðsins er að hlutfallið
sé yfir 5,0%. 

Í árslok námu útlán 680.406 millj. kr. og hækkuðu um 117.379 millj. kr. á
árinu. Lántaka sjóðsins nam 708.497 millj. kr. og hækkaði um 129.749 millj. kr.
á árinu. 

Eins og fram kom í tilkynningu Íbúðalánasjóðs 17. nóvember 2008 fór hann ekki
varhluta af þeirri kreppu á fjármagnsmörkuðum sem ríkti á síðustu mánuðum
ársins 2008 og varð fyrir verulegum skakkaföllum vegna falls þriggja stærstu
banka landsins. Sjóðurinn átti 16.620 millj. kr. kröfu á viðskiptabankana vegna
skuldabréfa og afleiðusamninga við fall þeirra í október. Sjóðurinn skuldaði
þeim 5.342 millj. kr. vegna afleiðusamninga og íbúðabréfa á sama tíma. Í
uppgjöri sjóðsins er gengið út frá að sjóðurinn eigi rétt á skuldajöfnun. Færð
hefur verið niðurfærsla að fjárhæð 7.875 millj. kr. til að mæta áætluðu tapi
sjóðsins. Óvissa er um uppgjör afleiðusamninga og heimild sjóðsins til
skuldajöfnunar. Tap sjóðsins getur því orðið annað þegar endanlegt uppgjör fer
fram. 

Nánari upplýsingar veita Guðmundur Bjarnason, framkvæmdastjóri og Ásta H.
Bragadóttir aðstoðarframkvæmdastjóri í síma 569 6900.