2009-03-31 21:56:09 CEST

2009-03-31 21:57:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Bakkavör Group hf. - Ársreikningur

Afkoma Bakkavör Group árið 2008


EBITDA fyrir kostnað vegna endurskipulagningar 109 milljónir punda á árinu

Fjármögnun rekstrarfélaga Bakkavarar að fullu tryggð næstu þrjú árin
144 milljón pund af innstæðu hjá Nýja Kaupþingi innleyst
Verulegur einskiptiskostnaður hafði áhrif á hagnað tímabilsins
Salan hélst góð þrátt fyrir krefjandi rekstrarumhverfi

•	Velta 1,6 ma.punda á árinu, 10% aukning, og 412,5 m.punda á fjórða
ársfjórðungi, 11% aukning 
•	Söluaukning í undirliggjandi rekstri 1,9% á árinu og 5,1% á ársfjórðungnum 
•	EBITDA fyrir kostnað vegna endurskipulagningar 108,5 m.punda á árinu, 27%
lækkun, og 15,7 m.punda á fjórða ársfjórðungi, 53% lækkun. EBITDA hlutfall
fyrir kostnað vegna endurskipulagningar nam 6,7% á árinu og 3,8 % á fjórða
ársfjórðungi 
•	Tap 154,2 m. punda á árinu, samanborið við hagnað að upphæð 47,4 m. punda
árið 2007. Tap á fjórða ársfjórðungi 98,5 m. punda, samanborið við hagnað að
upphæð 10,4 m.punda árið 2007. 
•	Einskiptiskostnaður 177 m.punda, m.a. vegna kostnaðar af hagræðingaraðgerðum
á tímabilinu, taps af fjárfestingu félagsins í Greencore Group, taps af
gangvirðisbreytingum vaxtaskiptasamninga og gengistaps af erlendum lánum
félagsins, auk áhrifa gjaldfærslu skatta vegna afnáms skattaívilnunar á
iðnaðarhúsnæði í Bretlandi á tímabilinu 
•	Handbært fé frá rekstri fyrir skatta og vexti 45,7 m. punda á árinu, 67%
lækkun, og handbært fé frá rekstri fyrir skatta og vexti á ársfjórðungnum var
neikvætt um 22,7 m.punda, samanborið við innflæði handbærs fjár fyrir skatta og
vexti 27,6 m. punda á fjórða ársfjórðungi 2007 

Ágúst Guðmundsson, forstjóri:
„Þrátt fyrir krefjandi umhverfi höfum við náð að tryggja fjármögnun allra
rekstrarfélaga Bakkavarar, styrkja rekstrargrundvöll félagsins og viðhaldið
sölu þrátt fyrir almennt minnkandi eftirspurn á mörkuðum félagsins. 

Það er mér sérstök ánægja að greina frá því að við höfum tryggt fjármögnun
allra rekstrarfélaga Bakkavarar til næstu þriggja ára eða fram til 30. mars
2012. Samningarnir sýna tiltrú og stuðning lánveitenda við starfsemi Bakkavarar
og eru mikilvæg skilaboð til viðskiptavina, birgja, starfsmanna og annarra
hagsmunaaðila um trygga fjárhagslega stöðu rekstrarfélaganna. Við höfum
jafnframt innleyst 144 milljónir punda af 150 milljóna punda innstæðu félagsins
hjá Nýja Kaupþingi frá þriðja ársfjórðungi 2008, en gert er ráð fyrir að
eftirstöðvar verði innleystar um miðjan apríl. 

Viðræður standa yfir við lánveitendur móðurfélagsins, en af viðræðum við
stærstu eigendur skuldabréfa félagsins má ráða að þeir styðji við áætlanir
félagsins um framlengingu á gjalddögum bréfanna. 

Einskiptiskostnaður hafði mikil áhrif á afkomu og sjóðstreymi Bakkavarar árið
2008, m.a. vegna hagræðingaraðgerða á tímabilinu og taps á fjárfestingu í
Greencore Group Plc auk þess sem rekstrarumhverfið var afar krefjandi. Við
höfum hins vegar náð árangri í að lágmarka áhrif verðhækkana á hráefni, auka
hagkvæmni í rekstri og auka markaðshlutdeild í nokkrum af  lykilvöruflokkum
félagsins. 

Við gerum ráð fyrir að viðskiptaumhverfið verði áfram krefjandi en teljum
jafnframt að þær aðgerðir sem þegar hefur verið ráðist í, ásamt áframhaldandi
áherslu á forgangsverkefni félagsins, geri það vel í stakk búið til að takast á
við núverandi aðstæður og mæta breyttri eftirspurn neytenda. Í ljósi þessa
gerum við ráð fyrir að félagið skili á ný góðri afkomu og auknu sjóðstreymi á
þessu ári.“