|
|||
2009-03-25 10:31:57 CET 2009-03-25 10:33:05 CET REGULATED INFORMATION Marel Food Systems hf. - FyrirtækjafréttirVegna fjölmiðlaumræðu um hugsanlega aðkomu erlendra aðila að Marel Food SystemsMarel Food Systems hefur átt í óformlegum viðræðum við erlenda aðila; banka, fjárfestingarsjóði og stærri iðnfyrirtæki um hugsanlega aðkomu þeirra að hluthafahópi Marels. Viðræður hafa verið að frumkvæði erlendu aðilanna og hafa ekki farið á formlegt stig. Stjórn Marel Food Systems hefur samþykkt að skoða tvíhliða skráningu hlutabréfa félagsins í Amsterdam eða Skandinavíu til viðbótar við skráningu hlutabréfanna í Nasdaq OMX á Íslandi með það að markmiði að auka seljanleika, bæta verðmyndun og auðvelda aðkomu erlendra aðila að félaginu. Stærstu hluthafar Marel Food Systems hafa lýst því yfir að þeir líti á hlutafjáreign sína sem langtímafjárfestingu og framundan sé tímabil samþættingar þar sem hin eiginlegu hluthafaverðmæti verði til. |
|||
|