2013-01-23 10:00:40 CET

2013-01-23 10:01:40 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Fyrirtækjafréttir

Kaup Regins hf. á Ofanleiti 2 lokið


Í tilkynningu Regins hf. þann 20. desember 2012 kom fram að Reginn hf. hefði
gert kauptilboð um kaup á fasteign að Ofanleiti 2 með fyrirvara m.a um
niðurstöðu á greiningu leigusamninga.  Enn fremur sendi Reginn frá sér
tilkynningu þann 16. janúar sl. (leiðrétt 17. janúar) þar sem kom fram að eini
fyrirvarinn tengdur kaupunum væri skuldaraskipti  á láni tengdu fasteigninni
þar sem lánveitandi var OFAN SVÍV fagfjárfestasjóður, sem er í umsýslu Stefnis
hf.  Nú hefur öllum fyrirvörum verið eytt og  kaupsamningur milli Regins og
SVÍV ses var undirritaður í dag 22. janúar.  Sama dag var gengið frá
skuldaraskipti á láninu og mun Reginn yfirtaka lánið við OFAN SVÍV
fagfjárfestasjóð.   Vísað er til lýsingar Fagfjárfestasjóðsins OFAN SVÍV sem
birt var 28. desember s.l. 

Kaupverðið er trúnaðarmál en áhrif kaupanna  eru áætluð  4 - 5% aukning á
EBITDA Regins á ársgrundvelli. 

Kaup þessi eru innan ramma fjárfestingastefnu Regins sem felur meðal annars í
sér að auka hlut í skrifstofuhúsnæði. 





Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

S: 5128900 / 8996262