2013-01-23 10:17:18 CET

2013-01-23 10:18:19 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Fagfjárfestasjóðurinn OFAN SVÍV - Fyrirtækjafréttir

Skilmálabreyting á OFANSV 11 1


Vísað er í tilkynningar frá útgefanda þann 16. janúar 2013 hins vegar og 18.
janúar 2013 annars vegar, þar sem fram kemur að OFAN SVÍV fagfjárfestasjóður og
útgefandi skuldabréfaflokksins OFANSV 11 1 óski eftir því við eigendur
skuldabréfaflokksins að heimild verði veitt til að breyta skilmálum flokksins
þannig að skuldaraskipti verði gerð á lánssamningi útgefanda við SVÍV ses. kt.
530978-0449. 

Eftirfarandi skilmálabreyting hefur verið gerð á skuldabréfaflokknum með
auðkennið OFANSV 11 1 og ISIN nr. IS0000020998 þar sem útgefandi er OFAN SVÍV
fagfjárfestasjóður kt.  461211-9760 í rekstri Stefnis hf.: 

Skuldskeyting hefur orðið á lánssamningi útgefanda við SVÍV ses. kt.
530978-0449 þar sem nýr skuldari lánssamnings útgefanda er Reginn A1 hf. kt.
521009-1010. Breytingin felur í sér eftirfarandi: 

  -- Þar sem OFAN SVÍV ses. kt. 530978-0449 er tilgreint í útgáfulýsingu kemur í
     staðinn Reginn A1, kt. 521009-1010.

Skilmálabreyting þessi hefur verið samþykkt af öllum kröfuhöfum og útgefanda
flokksins. Einnig hefur reglum útgefanda verið breytt með sama hætti. 



Nánari upplýsingar veitir Þorkell Magnússon forstöðmaður og sjóðsstjóri hjá
Stefni í síma 444-7472.