|
|||
2022-09-29 18:19:39 CEST 2022-09-29 18:19:39 CEST REGULATED INFORMATION Vátryggingafélag Íslands hf. - Changes in company's own sharesVÍS: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunarVÍS: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar Á aðalfundi Vátryggingafélags Íslands hf. (VÍS) þann 17. mars 2022 var samþykkt að heimila stjórn, í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun, að kaupa á næstu 12 mánuðum allt að 10% af hlutafé félagsins. Stjórn VÍS hefur á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé þess. Hámarksfjöldi hluta sem áætlunin kveður á um að verði keyptir eru 100.000.000 hlutir að nafnvirði, en það jafngildir um 5,71% af útgefnu hlutafé félagsins, sem er nú kr. 1.750.000.000 að nafnvirði. Gert er ráð fyrir að endurkaupum samkvæmt áætluninni ljúki í síðasta lagi 1. febrúar 2023 eða fyrr ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu. Endurkaup vátryggingafélaga í þeim tilgangi að lækka hlutafé eru háð fyrirfram samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands. Tilkynnt verður sérstaklega þegar slíkt samþykki hefur verið veitt og endurkaup munu hefjast. |
|||
|