2013-09-25 18:28:24 CEST

2013-09-25 18:29:25 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Orkuveita Reykjavíkur - Fyrirtækjafréttir

Áhersla á niðurgreiðslu skulda Orkuveitunnar


Fjárhagsáætlun 2014 og fimm ára áætlun 2015-2019 samþykktar í stjórn | Áfram
sparnaður í rekstri | Stöðugleiki í rekstrartekjum | Engar stökkbreytingar
eftir gildistíma Plansins 

Reykjavík, 2013-09-25 18:28 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- 
Orkuveita Reykjavíkur hyggst á næstu árum greiða skuldir fyrirtækisins niður um 
 80,3 milljarða króna samkvæmt fjárhagsáætlunum sem samþykktar hafa verið í     
 stjórn fyrirtækisins. Í fjárhagsáætlun fyrir árið 2014 og langtímaáætlun fyrir 
 árin 2015 til og með 2019 er áhersla lögð á áframhaldandi aðhald í rekstrinum  
 meðan staðinn er vörður um grunnþjónustu fyrirtækisins. Áætlunin er í samræmi  
 við Plan fyrirtækisins og eigenda, frá árinu 2011. Engin stakkaskipti verða í  
 starfseminni eftir að tímabili þess lýkur, í árslok 2016.                      
Sparnaður í rekstri Orkuveitunnar hefur skilað góðum árangri undanfarin ár og   
 telja stjórnendur fyrirtækisins að núverandi umfang henti viðfangsefnum þess.  
 Orkuveitan rekur vatnsveitur, hitaveitur, rafmagnsveitur og fráveitur í um 20  
 sveitarfélögum auk þess að framleiða orku í fjórum virkjunum. Fyrirhugaðar     
 fjárfestingar á næstu árum eru einkum í veitukerfum en líka í                  
 umhverfisverkefnum við virkjanirnar tvær á Hengilssvæðinu.Eins og ákveðið var  
 með Planinu, vorið 2011, er gert ráð fyrir að gjaldskrár Orkuveitunnar fylgi   
 verðlagi. Á árunum 2005 til 2010 rýrnuðu gjaldskrár fyrir rafmagn og heitt vatn
 um u.þ.b. þriðjung. Aðrar forsendur fjárhagsáætlunar eru í samræmi við         
 þjóðhagsspá. Ljóst er að þróun ytri þátta, svo sem gengis, vaxta og álverðs,   
 getur raskað þeim áformum sem í þeim birtast. Þung skuldabyrði í erlendum      
 gjaldmiðlum gerir fyrirtækið viðkvæmara fyrir sveiflum þessara þátta, jafnvel  
 þótt brugðist sé við með áhættuvörnum.                                         
Viðfest Fjárhagsáætlun Orkuveitu Reykjavíkur 2014 og fimm ára áætlun 2015 -     
 2019, sem stjórn Orkuveitunnar samþykkti föstudaginn 20. september, fer nú til 
 umfjöllunar hjá Reykjavíkurborg sem hluti af fjárhagsáætlunum samstæðu         
 Reykjavíkurborgar.                                                             




         Nánari upplýsingar:
         Bjarni Bjarnason
         forstjóri
         516 7707