|
|||
2017-07-18 13:58:33 CEST 2017-07-18 13:58:33 CEST SÄÄNNELTY TIETO Reginn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarSamkeppniseftirlitið samþykkir kaup Regins hf. á FM húsum ehf.Þann 30. maí sl. var undirritaður kaupsamningur milli Regins hf. og FM húsa ehf. um kaup á 55% hlutafé í FM – húsum ehf. Kaupsamningurinn innihélt m.a. fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Samkeppniseftirlitið hefur nú birt niðurstöðu sína, en samkvæmt henni telur Samkeppniseftirlitið að kaup Regins hf. á ofangreindu félagi feli í sér samruna í skilningi 17. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005. Samkeppniseftirlitið telur ekki ástæðu til að aðhafast frekar vegna samrunans.
Nánari upplýsingar veitir: Helgi S. Gunnarsson Forstjóri Regins hf. S: 512 8900 / 899 6262 |
|||
|