2011-12-20 18:30:34 CET

2011-12-20 18:31:34 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Icelandair Group hf. - Fyrirtækjafréttir

Icelandair Group gengur frá kaupum á 2 Boeing 757 200 vélum


Icelandair Group hefur gengið frá kaupum á tveimur Boeing 757 200 vélum sem
félagið hefur haft á langtímaleigu.  Ákveðið var að kaupa vélarnar af leigusala
vegna hagstæðra kjara sem félaginu bauðst.  Meginhluti kaupverðsins var
fjármagnaður með rúmlega 24 milljóna dollara láni til 6 ára.  Vélarnar hafa
verið í notkun í millilandaflugi Icelandair og munu halda því áfram. Björgólfur
Jóhannsson forstjóri Icelandair Group: „Miðað við áætlaðan notkunartíma vélanna
þá bæta kaupin afkomu félagsins og á þeim forsendum var ákvörðunin tekin.“ 

Nánari upplýsingar veita:

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sími: 896-1455
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, sími: 665-8801