2013-11-14 14:10:12 CET

2013-11-14 14:11:12 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Félagsbústaðir hf. - Fyrirtækjafréttir

Varðar Reikningsskil Félagsbústaða vegna áranna 2011 og 2012


Við eftirlit með reikningsskilum Félagsbústaða hf. fyrir reikningsárið 2011 kom
í ljós að ársreikningur félagsins var ekki gerður og settur fram í samræmi við
alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Hinn 29 maí 2012 ákvarðaði
ársreikningaskrá ríkisskattstjóra að félaginu væri skylt að beita IFRS við gerð
og framsetningu ársreikninga sinna í samræmi við ákvæði 90.gr. laga nr. 3/2006
um ársreikninga. Hinn 21. júlí 2013 staðfesti atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytið ákvörðun ársreikningaskrár en félagið hafði kært ákvörðun
ársreikningaskrár til ráðuneytisins. 

Stefnt er að endurgerð reikningsskila félagsins í samræmi við alþjóðlega
reikningsskilastaðla og birtingu þeirra vegna reikningsáranna 2011 og 2012
verði lokið fyrir 31. janúar 2014