2014-07-11 13:45:00 CEST

2014-07-11 13:45:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 14 1015 OG RIKV 15 0115


Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 14 1015 og RIKV 15 0115 með
tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. 

Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama
verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.
Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar
miðað við 360 daga ár (Actual/360). 

                    Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar:

RIKV 14 1015:

Alls bárust 5 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 1.200 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 700 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,963 (flatir vextir
4,10%). 

RIKV 15 0115:

Alls bárust 8 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.450 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 3.280 m.kr. að nafnverði á verðinu 97,898 (flatir
vextir 4,20%).