2013-03-08 10:05:01 CET

2013-03-08 10:06:02 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kópavogsbær - Fyrirtækjafréttir

Endurfjármögnun Kópavogsbæjar


Í samræmi við lög um verðbréfaviðskipti og með vísan í tilkynningu frá 8.
febrúar sl. um endurfjármögnun á eingreiðsluláni frá Dexia Crédit Local að
fjárhæð EUR EUR 35.000.000 er það staðfest að bærinn hefur náð samkomulagi við
lánveitanda um framlengingu á EUR 10.000.000, til að dreifa kaupum á gjaldeyri
fram á haustið 2013. Eftirstöðvarnar verða greiddar með tveimur jöfnum
afborgunum þann 30. ágúst 2013 og 30. september 2013. 

Einnig hefur bærinn gert samkomulag við innlendan banka um aðgang að skammtíma
lánalínu fyrir allt að EUR 10.000.000 einnig í þeim tilgangi að draga úr þörf á
gjaldeyriskaupum nú á vormánuðum. Verði þessi lánalína notuð, þá verður hún
uppgreidd fyrir haustið 2013.