2017-01-24 18:23:46 CET

2017-01-24 18:23:46 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íslandsbanki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Islandsbanki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa


Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.

Heildareftirspurn í útboðinu var 1.560 m.kr.

Óverðtryggði flokkurinn ISLA CB 19 var stækkaður um 580 m.kr. á
ávöxtunarkröfunni 5,56%. Heildartilboð voru 880 m.kr. á bilinu 5,51% - 5,58%.
Heildarstærð flokksins verður 9.360 m.kr. eftir útgáfuna.

Verðtryggði flokkurinn ISLA CBI 22 var stækkaður um 540 m.kr. á
ávöxtunarkröfunni 3,25%. Heildartilboð voru 540 m.kr. á bilinu 3,21% - 3,25%.
Heildarstærð flokksins verður 6.840 m.kr. eftir útgáfuna.

Verðtryggði flokkurinn ISLA CBI 26 var stækkaður um 140 m.kr. á
ávöxtunarkröfunni 3,05%. Heildartilboð voru 140 m.kr. á 3,05%. Heildarstærð
flokksins verður 19.640 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 31. janúar næstkomandi.

Heildarfjárhæð  útistandandi  sértryggðra  skuldabréfa  Íslandsbanka  að afloknu
útboði verður að nafnverði 65.960 m.kr.

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187.
  * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma
    440 4005.


[]