2014-04-29 12:37:16 CEST

2014-04-29 12:38:16 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Norðurþing - Ársreikningur

Ársreikningur Norðurþings fyrir árið 2013


Rekstrarafkoma samstæðu Norðurþings Jákvæð

Ársreikningur Norðurþings fyrir árið 2013 hefur verið lagður fyrir bæjarráð og
er honum vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn. 

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu 2013 námu 2.718 milljónum króna
samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A og B hluta.  Rekstrargjöld
sveitarfélagsins námu 2.599 milljónum króna.  Rekstrarniðurstaða
sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A og B hluta var 68
milljón króna betri en fjárhagsáætlanir gerðu ráð fyrir en samstæðan skilaði um
51 milljón í rekstrarafgang.  Eigið fé samstæðu sveitarfélagsins í árslok nam
485 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi.  Veltufé frá rekstri
samstæðunnar nam um 339 milljónum króna.  Handbært fé í árslok nam 597
milljónum króna.  Á árinu 2013 var gjaldfært hjá málaflokknum félagsþjónusta
sérstakt framlag um 21 milljón króna til reksturs Dvalarheimilis aldraðra sf.,
sem ekki var gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun.  Á árinu 2013 ver einnig
gjaldfært hjá málaflokknum hreinlætismál sérstakt framlag um 25 milljónir króna
til reskstrar Sorpsamlags Þingeyinga ehf., sem ekki var gert ráð fyrir í
fjárhagsáætlun.  Þá var einnig gjaldfært hjá Aðalsjóði sérstakt framlag um 74
milljónir króna vegna rekstrar Þjónustumiðstöðvar sem ekki var gert ráð fyrir í
áætlun. 

Laun og launatengd gjöld á árinu námu alls 1.447 milljónum króna en
starfsmannafjöldi hjá sveitarfélaginu nam 234 stöðugildum.  Íbúafjöldi
sveitarfélagsins 1. desember 2013 var 2.826 og fækkaði um 37 frá fyrra ári. 

Skuldahlutfall skv. reglum um fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga fór úr 184% árið
2012 í 179% árið 2013.  Skuldir samstæðu sveitarfélagsins lækkuðu um 234
milljónir milli ára. 

Ársreikningur Norðurþings fyri árið 2013 er tilbúinn til endurskoðunar og
afgreiðslu í bæjarstjórn.  Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins er betri en
fjárhagsátælun gerði ráð ráð fyrir. 

Nánari upplýsingar vetir Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri Norðurþings í síma
464-6100