2015-03-26 13:38:55 CET

2015-03-26 13:39:56 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Akureyrarbær - Ársreikningur

Ársreikningur Akureyrarbæjar 2014


Rekstrarafgangur og skuldir lækka

Rekstur samstæðu Akureyrarbæjar var viðunandi á árinu og varð rekstrarafgangur
meiri en áætlanir höfðu gert ráð fyrir. Rekstur Aðalsjóðs var þó þungur.
Skuldir lækkuðu um 745 milljónir króna. Ársreikningar fyrir árið 2014 voru
lagðir fram í bæjarráði í dag. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um
ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður hann til umfjöllunar
í bæjarstjórn Akureyrar 7. og 21. apríl  nk. 



Ársreikningurinn er settur fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga.
Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins
vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð
með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, Fasteignir Akureyrarbæjar,
Framkvæmdamiðstöð og Eignasjóð gatna. Til B-hluta teljast fjárhagslega
sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en
rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin
eru: Félagslegar íbúðir Akureyrarbæjar, Strætisvagnar Akureyrabæjar,
Öldrunarheimili Akureyrabæjar, Framkvæmdasjóður Akureyrarbæjar,
Bifreiðastæðasjóður Akureyrabæjar, Hafnarsamlag Norðurlands, Norðurorka hf,
Heilsugæslustöðin á Akureyri, Byggingasjóður Náttúrufræðistofnunar og
Gjafasjóður Öldrunarheimila Akureyrarbæjar. 



Rekstur samstæðu Akureyrarbæjar var viðunandi og heildarniðurstaða ársins í
meginatriðum eins og fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Rekstrarniðurstaða
samstæðunnar var jákvæð um 525 milljónir króna en áætlun hafði gert ráð fyrir
449 milljóna króna rekstarafgangi. Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi nam veltufé
frá rekstri 2.187,6 millj. kr. sem er 402,7 millj. kr. minna en áætlun hafði
gert ráð fyrir og 330,6 millj. kr. lægri upphæð en árið áður. Handbært fé frá
rekstri nam 2.273,8 millj. kr. Fjárfestingarhreyfingar námu samtals 1.202
millj. kr. Fjármögnunarhreyfingar námu samtals 1.082,5 millj. kr. Afborgun
langtímalána nam 1.042,8 millj. kr. en ný langtímalán voru engin. Lækkun á
handbæru fé á árinu nam 10,7 millj. kr. og nam handbært fé sveitarfélagsins í
árslok 1.822 millj. kr. 



Heildarlaunagreiðslur án launatengdra gjalda hjá samstæðunni voru 8.381.817
þúsundir króna. Fjöldi stöðugilda var að meðaltali 1.552 sem er 4 færra en árið
áður. Laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins í hlutfalli við rekstrartekjur
þess voru 56,2%. Annar rekstrarkostnaður var 31,3,% af rekstrartekjum.
Skatttekjur sveitarfélagsins voru 590 þús. kr. á hvern íbúa en tekjur samtals
1.073 þús. kr. á hvern íbúa. Árið 2013 voru skatttekjurnar 565 þús. kr. á hvern
íbúa og heildartekjurnar 1.037 þús. kr. 



Þrátt fyrir stöðugleika í rekstri var niðurstaða A-hluta neikvæð um 134 millj.
kr. en fjárhagáætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 37 millj. kr. Sér í
lagi var rekstur aðalsjóðs þungur innan A-hluta og skýrist að stórum hluta af
kjarasamningsbundnum launahækkunum og hækkun á lífeyrisskuldbindingum. Á móti
kom að lítil verðbólga og hagstæð gengsþróun ollu því að fjármagskostnaður var
mun lægri en áætlanir gerðu ráð fyrir. 



Samkvæmt efnahagsreikningi voru eignir sveitarfélagsins bókfærðar á 39.396,6
millj. kr. í árslok, þar af voru veltufjármunir 3.710,5 millj. kr. Skuldir
sveitarfélagsins með lífeyrisskuldbindingum námu samkvæmt efnahagsreikningi
22.601,5 millj. kr., þar af voru skammtímaskuldir 3.320,4 millj. kr. Fjárhagur
Akureyrarbæjar er traustur og nam skuldaviðmið samkvæmt reglum Eftirlitsnefndar
með fjármálum sveitarfélaga 105% en var 112% árið áður. 



Veltufjárhlutfallið var 1,12 í árslok en var 1,20 árið áður. Bókfært eigið fé
nam 16.795,1 millj. kr í árslok. Eiginfjárhlutfall var 43% af heildarfjármagni
í árslok en var 40% árið áður. 







Nánari upplýsingar veitir Dan Brynjarsson, fjármálastjóri, í síma 460 1000.