|
|||
2016-09-20 17:57:47 CEST 2016-09-20 17:57:47 CEST BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf. : Landsbankinn semur um viðskiptavakt með sértryggð skuldabréfLandsbankinn hf. hefur í dag undirritað samninga við Arion banka hf., Íslandsbanka hf. og Kviku hf. um viðskiptavakt á eftirmarkaði með sértryggð skuldabréf útgefin af Landsbankanum. Skuldabréfin eru skráð á Nasdaq Iceland og taka skyldur viðskiptavaka samkvæmt samningi gildi þann 4. október 2016. Viðskiptavakar munu fyrir opnun markaða dag hvern setja fram kaup- og sölutilboð í sértryggð skuldabréf útgefin af Landsbankanum. Lágmarksfjárhæð tilboða í markflokka skal vera 80 m. kr. að nafnverði en hafi markflokkur ekki náð 10 ma. kr. stærð miðast tilboðsstærð við 60 m. kr. að lágmarki. Markflokkar eru LBANK CB 19 og LBANK CBI 22. Lágmarksfjárhæð tilboða í aðra flokka sem samningurinn tekur til er 20 m. kr. að nafnverði. Skyldur einstakra viðskiptavaka falla niður á tilteknum viðskiptadegi ef viðskiptavaki hefur átt viðskipti (tilgreind "AUTO") með sértryggð skuldabréf fyrir 500 m. kr. að nafnverði samanlagt í þeim flokkum sem samningurinn nær til. Hámarksmunur kaup- og sölutilboða ákvarðast af verði gildra tilboða og tekur mið af árafjölda til lokagjalddaga sértryggðu skuldabréfanna, á hverjum tíma, í samræmi við eftirfarandi töflu: +---------------------------------------+ |Tími til lokagjalddaga Hámarksverðmunur| +---------------------------------------+ | 0 - 6 mán Enginn | | | | 6 mán - 2 ár 0,20% | | | | 2 - 4 ár 0,30% | | | | 4 - 6 ár 0,35% | | | | 6 - 9 ár 0,60% | | | | 9 - 12 ár 0,70% | | | | 12 - 18 ár 1,00% | | | | 18 ár eða lengri 1,15% | +---------------------------------------+ Frá gildistöku samninga um viðskiptavakt geta viðskiptavakar fengið tímabundin bréfalán í flokki þeirra skuldabréfa sem samningurinn tekur til. Hámarkslán til einstakra viðskiptavaka er 320 m. kr. að nafnverði í hverjum markflokki en 80 m. kr. í öðrum flokkum. [] |
|||
|