|
|||
2016-09-20 18:23:53 CEST 2016-09-20 18:23:53 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirArion banki og Kvika gera með sér samning um viðskiptavakt á sértryggðum skuldabréfumArion banki hf., og Kvika banki hf., hafa gert með sér samning um viðskiptavakt á sértryggðum skuldabréfum á Nasdaq OMX Iceland hf. útgefnum af Arion banka. Tilgangur samningsins er að efla viðskipti með þau skuldabréf sem samningurinn tekur til í því skyni að eðlilegt markaðsverð skapist á skuldabréfunum og verðmyndum verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti. Kvika mun daglega setja fram kaup- og sölutilboð í skuldabréfin. Lágmarksfjárhæð að nafnvirði í markflokka skuldabréfa skal vera 80 m. kr. en lágmarksfjárhæð tilboða í aðra flokka skal vera 20 m. kr. Fyrir markflokka gildir að ef útistandandi nafnvirði er minna en 10 ma. kr. skal fjárhæð tilboða vera 60 m. kr. en 80 m. kr. þegar stærð flokks hefur náð 10 ma. kr. að nafnvirði. Skuldabréfaflokkarnir ARION CBI 21, ARION CBI 29 og ARION CB 22 eru markflokkar. Aðrir flokkar eru ARION CBI 19 og ARION CBI 34. Hámarksmunur kaup og sölutilboða fer eftir árafjölda til lokagjalddaga á hverjum tíma sbr. neðangreind töflu. Miða skal við árafjölda til gjalddaga. Á gildistíma samnings skal hámarksmunur kaup og sölutilboða breytast í samræmi við tíma sem eftir er til gjalddaga sbr. neðangreinda töflu Árafjöldi til lokagjalddaga Hámarksverðbil ----------------------------------------------------------- 0-6 mán Ekki skilgreint hámarksverðbil ----------------------------------------------------------- 6 mán – 2 ár 0,20% ----------------------------------------------------------- 2-4 ár 0,30% ----------------------------------------------------------- 4-6 ár 0,35% ----------------------------------------------------------- 6-9 ár 0,60% ----------------------------------------------------------- 9-12 ár 0,70% ----------------------------------------------------------- 12-18 ár 1,00% ----------------------------------------------------------- 18 ár eða lengra 1,15% ----------------------------------------------------------- Hámarksfjárhæð heildarviðskipta sem Kvika er skylt að eiga með skuldabréfaflokka sem falla undir þennan samning hvern dag sem Kvika er skuldbundinn til að setja fram tilboð samkvæmt samningi þessum skal vera samtals kr. 500 milljónir,- að nafnvirði samanlagt í öllum skuldabréfaflokkum. Arion banki mun veita Kviku aðgang að verðbréfalánum. Hámarkslán til Kviku í hverjum flokki sértryggðra skuldabréfa er 320 m.kr. að nafnverði fyrir markflokka en 80 m.kr. að nafnvirði fyrir aðra flokka. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|