|
|||
![]() |
|||
2016-03-07 09:00:50 CET 2016-03-07 09:00:50 CET REGULATED INFORMATION Fjarskipti hf. - FyrirtækjafréttirFjarskipti hf. : Reglubundin tilkynning um kaup Fjarskipta á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ viku 9 keyptu Fjarskipti hf. 371.000 eigin hluti að kaupverði 17.419.250 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.) -------------------------------------------------------------------- 29.2.2016 15:20 71.000 46,75 3.319.250 -------------------------------------------------------------------- 02.3.2016 15:15 300.000 47,00 14.100.000 -------------------------------------------------------------------- Samtals 371.000 14.419.250 Fjarskipti áttu 9.495.164 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 9.866.164 eigin hluti eða sem nemur 2,94% af útgefnum hlutum í félaginu. Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Fjarskipta sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 18. febrúar 2016. Fjarskipti hafa keypt samtals 771.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,23% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 35.524.250 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 2.188.184 hlutum eða sem nemur 0,65% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó ekki meira en 100.000.000 kr. að kaupverði. Endurkaupaáætlunin er í gildi til 17. mars 2016 nema ef kaupum samkvæmt henni verður lokið áður. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið "Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga." Nánari upplýsingar veitir: Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir, fjarfestatengsl@vodafone.is [HUG#1992147] |
|||
|