2016-03-07 10:10:45 CET

2016-03-07 10:10:45 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjavíkurborg - Fyrirtækjafréttir

Reykjavíkurborg - Útboð RVK 53 1 og RVKN 35 1


Reykjavíkurborg hefur ákveðið í samræmi við útgáfuáætlun 2016 að efna til
útboðs í flokkum RVK 53 1 og RVKN 35 1 miðvikudaginn 9. mars. Reykjavíkurborg
stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 500 milljónir króna að markaðsvirði.
Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að hækka eða lækka útboðsfjárhæð
útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. 

Útboðið verður með því fyrirkomulagi að samþykkt tilboð í hvorum
skuldabréfaflokki bjóðast á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta
ávöxtunarkrafa) mun ákvarða söluverð. 

Heildarstærð RVK 53 1 fyrir þetta útboð nemur alls 19.280 m.kr. að nafnvirði.

Heildarstærð RVKN 35 1 fyrir þetta útboð nemur alls 1.700 m.kr. að nafnvirði.

Heimild til lántöku á árinu 2016 er 2.246 m.kr.

Uppgjör sölu fer fram mánudaginn 14.mars 2016.

Arion banki, Íslandsbanki, Landsbanki og Kvika banki eru umsjónaraðilar
útboðsins og hafa einir rétt á tilboðsgerð. Tilboð skulu berast fyrir kl. 16:00
miðvikudaginn 9. mars. 

Óskað er eftir tilboðum í samræmi við útboðsskilmála í fylgiskjali:



Nánari upplýsingar gefur:
Birgir Björn Sigurjónsson
Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
Sími: 693-9321