2015-07-27 18:14:14 CEST

2015-07-27 18:15:16 CEST


BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR

Íslenska Enska
Icelandair Group hf. - Ársreikningur

EBITDA hjá Icelandair Group eykst á milli ára á 2. ársfjórðungi


  -- EBITDA var jákvæð um 50,3 milljónir USD samanborið við 45,2 milljónir USD á
     öðrum ársfjórðungi 2014.
  -- Arðbær innri vöxtur í millilandaflugi og lægra eldsneytisverð skýrir að
     mestu afkomubatann milli ára.
  -- Flutningatekjur jukust um 2%, en heildartekjur drógust saman um 1%
  -- Eiginfjárhlutfall var 36% í lok júní.
  -- Handbært fé frá rekstri 86,7 milljónir USD.



Björgólfur Jóhannsson, forstjóri:

„Afkoma á öðrum ársfjórðungi var góð, EBITDA nam 50,3 milljónum USD og jókst um
 5,0 milljónir USD samanborið við afkomu annars ársfjórðungs 2014. Helsta
skýringin á góðu gengi félagsins er arðbær innri vöxtur í millilandastarfsemi
félagsins. Framboð í millilandafluginu var aukið um 15% á fjórðungnum
samanborið við síðasta ár og á sama tíma fjölgaði farþegum um 17%. Sætanýting
var góð, nam 81,8% og jókst um 1,8 prósentustig á milli ára.  Þá hefur lækkun
eldsneytisverðs á milli ára jákvæð áhrif á afkomuna. Rekstur annarrar starfsemi
félagsins gekk einnig vel á fjórðungnum. 

Í upphafi árs gáfum við út EBITDA-spá sem nam 160-165 milljónum USD og
staðfestum við hana við birtingu uppgjörs fyrir fyrsta ársfjórðung í apríl
síðastliðnum.  Rekstur félagsins hefur gengið vel á fyrstu sex mánuðum ársins,
auk hagfelldrar þróunar á ytri aðstæðum frá síðasta uppgjöri. Uppfærðar
forsendur gera nú ráð fyrir að EUR/USD krossinn verði að meðaltali 1,10 út árið
í stað 1,07 sem hefur jákvæð áhrif á reksturinn.  Eins hefur bókunarstaða fyrir
næstu mánuði í millilandaflugi styrkst umfram væntingar félagsins og hefur það
að öðru óbreyttu jákvæð áhrif á afkomu á síðari hluta ársins, þá sérstaklega á
afkomu þriðja ársfjórðungs.  Að teknu tilliti til þessara þátta er nú gert ráð
fyrir að EBITDA félagsins fyrir árið 2015 verði á bilinu 180-185 milljónir
USD.“