2008-10-07 11:48:06 CEST

2008-10-07 11:49:07 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Standard & Poor's lækkar lánshæfismat Íbúðalánasjóðs


Matsfyrirtækið Standard & Poor's greindi frá því í gær, 6. október 2008, að það
hefði lækkað lánshæfismat Íbúðalánasjóðs vegna langtímaskuldbindinga í
íslenskum krónum í 'BBB' úr 'A+'. Jafnframt var lánshæfiseinkunn vegna
langtímaskuldbindinga í erlendri mynt lækkuð í 'BBB' úr 'A-'. Þá voru
langtímaeinkunnir teknar af athugunarlista með neikvæðum vísbendingum.
Lánshæfiseinkunn fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt var lækkuð í
'A-3' úr 'A-2' og einkunn fyrir skammtímaskuldbindingar í íslenskum krónum
'A-1' var lækkuð í 'A-3'. 

Horfur á lánshæfismat Íbúðalánasjóðs eru neikvæðar.

Sjá nánari umfjöllun í viðhengi.