2013-10-16 11:04:00 CEST

2013-10-16 11:05:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Orkuveita Reykjavíkur - Fyrirtækjafréttir

Reitun bætir lánshæfismat Orkuveitunnar


Reykjavík, 2013-10-16 11:04 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- Matsfyrirtækið Reitun
hefur breytt horfum í lánshæfismati á Orkuveitu Reykjavíkur úr stöðugum í
jákvæðar. Helstu ástæður þess eru sterkur rekstur og hversu vel hefur gengið að
fylgja eftir Planinu - aðgerðaáætlun Orkuveitunnar og eigenda. Heildareinkunn
Reitunar er áfram B+. Orkuveitan þarf að styrkja lausafjárstöðuna, draga úr
markaðsáhættu og borga niður skuldir til að sú einkunn hækki, að því er kemur
fram í viðhengdu lánshæfismati. Fyrirtækið vinnur að styrkingu lausafjár meðal
annars með sölu eigna, áformað er að greiða skuldir Orkuveitunnar niður um
rúmlega 80 milljarða króna samkvæmt nýsamþykktum fjárhagsáætlunum og stöðugt er
unnið að bættum vörnum gegn hugsanlegri óhagstæðri þróun ytri þátta
rekstursins. 

Úr samantekt lánshæfismats Reitunar:

Sterkur rekstur og dregið hefur úr markaðsáhættu

Vel hefur gengið að fylgja eftir aðgerðaráætlun Orkuveitunnar sem lagt var af
stað með árið 2011. Gjaldskrá er nú vísitölutengd, dregið hefur úr
rekstrarkostnaði og EBITDA framlegð félagsins er góð. Þröng lausafjárstaða
dregur úr sveigjanleika Orkuveitunnar til að mæta áföllum en félagið er
viðkvæmt fyrir ytri þáttum og markaðsáhætta er töluverð. Gerðir hafa verið
vaxtaskiptasamningar til að draga úr vaxtaáhættu og er Orkuveitan vel varin
fyrir vaxtabreytingum næstu árin. Erlendar skuldir félagsins eru 80% af
heildarskuldum þess og gengisáhætta er stærsti áhættuþáttur þess. Unnið er að
niðurgreiðslu skulda en félagið er þó enn mikið skuldsett. Sjóðstreymi
Orkuveitunnar mun samkvæmt áætlun standa undir afborgunum og vöxtum
skuldbindinga á næstu árum. Ef heldur áfram sem horfir er það mat Reitunar að
félagið verði orðið fjárhagslega sterkt innan fárra ára.