|
|||
2021-04-09 11:37:58 CEST 2021-04-09 11:37:58 CEST REGULATED INFORMATION Vátryggingafélag Íslands hf. - Changes in company's own sharesVÍS: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunarÁ aðalfundi Vátryggingafélags Íslands hf. þann 19. mars 2021 var samþykkt að heimila stjórn, í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun, að kaupa á næstu 12 mánuðum allt að 10% af hlutafé félagsins. Stjórn VÍS hefur á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé þess. Félaginu barst í dag samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands („Fjármálaeftirlitið“) og munu endurkaup hefjast þegar í stað. Hámarksfjöldi hluta sem áætlunin kveður á um að verði keyptir er 17.000.000 hlutir að nafnvirði, en það jafngildir um 0,89% af útgefnu hlutafé félagsins, sem er nú kr. 1.894.462.192 að nafnvirði. Fjárhæð endurkaupanna verður þó aldrei hærri en kr. 250.000.000 að markaðsvirði. Heimildin gildir í tvo mánuði frá og með samþykki Fjármálaeftirlitsins. Viðskipti félagsins með eigin hluti á grundvelli endurkaupaáætlunarinnar verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram. Fyrir á Vátryggingafélag Íslands hf. alls 16.000.000 eigin hluti, eða 0,84% af heildarhlutafé félagsins. Nánari upplýsingar: Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri VÍS, í síma 660-5260 og með tölvupósti erlat@vis.is |
|||
|