2015-05-04 16:57:26 CEST

2015-05-04 16:58:27 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Orkuveita Reykjavíkur - Fyrirtækjafréttir

Lánshæfi Orkuveitunnar styrkist um tvö þrep


Reykjavík, 2015-05-04 16:57 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- Lánshæfismatsfyrirtækið
Reitun hefur hækkað lánshæfiseinkunn Orkuveitu Reykjavíkur um tvö þrep, úr i.A3
í i.A1. Gangi áætlanir Orkuveitunnar eftir er rúm til frekari hækkunar á
lánshæfiseinkunninni. Í mati Reitunar á Orkuveitunni segir: 

„Horfum í lánshæfi Orkuveitunnar var breytt í jákvæðar í janúar sl. og
staðfesti uppgjör félagsins þá þróun sem væntingar stóðu til um. Áframhaldandi
styrking á fjárhagsstöðu félagsins, trúverðug fjárhagsáætlun ásamt góðum
árangri í að ná markmiðum Plansins og staðfesta stjórnar og stjórnenda er
ástæða þess að einkunn félagsins hækkar um tvö þrep. Samhliða batnandi
fjárhagsstöðu og minni áhættu vinnur félagið áfram að aðgerðum til aukins
fjárhagslegs svigrúms eins og fram kemur í fjárhagsáætlun þess. Framundan er
m.a. fjármögnun sem ætti að styrkja veltufjárhlutfall fyrirtækisins. Svigrúm er
til áframhaldandi styrkingar á lánshæfi félagsins gangi markmið og áætlun þess
eftir.“ 

Mat Reitunar er í viðhengi.


         Nánari upplýsingar:
         Ingvar Stefánsson
         Framkvæmdastjóri fjármála
         617 6301