2012-04-23 12:07:18 CEST

2012-04-23 12:08:20 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjavíkurborg - Fyrirtækjafréttir

Útboð RVK 09 1


Reykjavíkurborg hefur ákveðið í samræmi við útgáfuáætlun 2012 að efna til
útboðs þann 25. apríl 2012 til stækkunar á skuldabréfaflokki með auðkennið RVK
09 1. 

Reykjavíkurborg stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 500 milljónir króna
að nafnvirði. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að hækka eða lækka
útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. 

Útboðið verður með því fyrirkomulagi að samþykkt tilboð bjóðast á sama verði.
Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) mun ákvarða söluverð. 

Heildarstærð flokksins fyrir þetta útboð nemur alls 14.895 m.kr. að nafnvirði.
Heimild til stækkunar á árinu 2012 er 6.230 m.kr. að nafnvirði. Flokkurinn
hefur verið stækkaður um 380 m.kr. það sem af er árinu 2012. 

Uppgjör sölu fer fram mánudaginn 30. apríl 2012.

Umsjón með sölu skuldabréfanna hafa Íslandsbanki og MP banki.

Óskað er eftir tilboðum í samræmi við útboðsskilmála í fylgiskjali:

Nánari upplýsingar gefur:
Birgir Björn Sigurjónsson
Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
Sími: 693-9321