|
|||
2015-12-08 15:21:23 CET 2015-12-08 15:21:23 CET REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Reginn hf. - FyrirtækjafréttirReginn hf.: Fagfjárfestasjóðurinn REG 1 12 1.Knatthöllin ehf. og Kvikmyndahöllin ehf., eigendur Egilshallar og dótturfélög Regins hf. hafa gengið frá fjármögnun að fjárhæð kr. 1.500.000.000,-. Um er að ræða viðbótarfjármögnun vegna nýframkvæmda. Lánveitandi er REG 1 12 1 fagfjárfestasjóður í rekstri Stefnis hf. sem jafnframt sinnir veðgæslu og umsjón með skuldabréfaflokknum. Stefnir hf. annaðist milligöngu um stækkun á núverandi skuldabréfaflokki REG 1 12 1 um kr. 1.500.000.000.- að nafnverði. Heildarútgefið nafnverð flokksins verður því kr. 7.000.000.000,-. Aðrir skilmálar flokksins haldast óbreyttir. Skuldabréf sjóðsins eru seld á ávöxtunarkröfunni 3.6%. Gert er ráð fyrir að flokkurinn verði stækkaður þann 15. desember n.k. Nánari upplýsingar veitir: Helgi S. Gunnarsson Forstjóri Regins hf. S: 512 8900 / 899 6262 |
|||
|