|
|||
2009-11-06 12:56:26 CET 2009-11-06 12:57:56 CET REGULATED INFORMATION Össur hf. - Heildarfjöldi atkvæða og heildarfjöldi hlutaSkráningu á 29.500.000 nýjum hlutum lokiðEkki til útgáfu eða dreifingar í Ástralíu, Kanada, Japan eða Bandaríkjunum. Fréttatilkynning frá Össuri hf Reykjavík, 6. nóvember 2009; GMT 11:15 Skráningu á 29.500.000 nýjum hlutum lokið Vísað er til kauphallartilkynningar, dags. 3. nóvember 2009. Skráningu á hlutafjáraukningu vegna útboðs Össurar hf. á nýjum hlutum að nafnvirði 29.500.000 kr. er lokið. Hlutafjáraukningin hefur verið skráð hjá Fyrirtækjaskrá. Hlutafjáraukningin nemur um 7,0% af hlutafé Össurar hf. fyrir útboðið og um 6,5% af hlutafé félagsins eftir aukninguna. Eftir aukninguna nemur heildarhlutafé Össurar 452.500.000 hlutum, að nafnvirði 1 kr. á hlut, sem svarar til 452.500.000 kr. að nafnvirði. Nýju hlutirnir verða skráðir undir núgildandi auðkenni bréfa Össurar hjá NASDAQ OMX á Íslandi og NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn, IS0000000040, þann 9. nóvember 2009. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Össurar hf.: www.ossur.is/investors Nánari upplýsingar veita: Jón Sigurðsson, forstjóri, sími 515-1300 Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, sími 515-1300 Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill, sími 664-1044 ***** Tilynning þessi er ekki tilboð um sölu verðbréfa í Bandaríkjunum. Verðbréf má ekki bjóða til sölu eða selja í Bandaríkjunum án skráningar eða undanþágu skv. bandarískum verðbréfalögum frá 1933, með áorðnum breytingum. Útgefandi verðbréfanna hefur ekki skráð og hefur ekki áform um að skrá neinn hluta útboðsins í Bandaríkjum og hyggst ekki bjóða út verðbréf opinberlega í Bandaríkjunum. Tilkynningu þessari er aðeins dreift til og beinist aðeins til (i) aðila utan Bretlandseyja eða (ii) aðila sem eru fagfjárfestar í skilningi e-liðar 1. mgr. 2. gr. tilskipunar 2003/71/EB ("Evróputilskipunarinnar um útboðs- og skráningarlýsingar") og sem eru annað hvort (x) fagfjárfestar sem falla undir 5. mgr. 19. gr. breskra laga um fjármálaþjónustu og markaði frá árinu 2000 ("the Financial Services and Markets Act 205 (Financial Promotion) Order 2005") eða (y) fjársterk fyrirtæki, svo og til annarra sem heimilt er að lögum að dreifa skjalinu til og falla undir a - d-liði 2. mgr. 49. gr. fyrrnefndra laga (en allir þeir aðilar sem nefndir eru í liðum (i) og (ii) hér að framan eru sameiginlega nefndir "viðeigandi aðilar". Hinir nýju hlutir eru aðeins falir viðeigandi aðilum og aðeins verður gengið að boðum, tilboðum eða samningum viðeigandi aðila um að skrifa sig fyrir, kaupa eða eignast verðbréfin með öðrum hætti. Aðili, sem ekki er viðeigandi aðili, ætti ekki að gera neinar ráðstafanir á grundvelli þessa skjals eða reiða sig á neinn hátt á efni þess. Tilkynning þessi er auglýsing og telst ekki útboðs- eða skráningarlýsing í skilningi Evróputilskipunarinnar um útboðs- og skráningarlýsingar ásamt hvers kyns gerðum til innleiðingar hennar í viðkomandi aðildarríkjum samkvæmt henni. Í aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins, sem innleitt hafa Evróputilskipunina um útboðs- og skráningarlýsingar, er orðsendingu þessari aðeins beint til fjárfesta í viðkomandi aðildarríki sem teljast fagfjárfestar í skilningi tilskipunarinnar og á hún aðeins erindi við slíka fjárfesta. ***** Í tilkynningu þessari er að finna tilteknar yfirlýsingar þar sem horft er til framtíðar, þ.m.t. yfirlýsingar um viðskipti félagsins og útboðið. Slíkar yfirlýsingar byggjast á upplýsingum, ályktunum og áætlunum sem af hálfu félagsins eru taldar raunhæfar. Þær kunna að breytast eða vera breytt vegna óvissu sem tengist efnahagslegu og fjárhagslegu umhverfi félagsins, ásamt lagalegum atriðum og markaðsaðstæðum. Að auki kunna viðskipti félagsins og geta þess til þess að ná markmiðum sínum að verða fyrir neikvæðum áhrifum ef einn eða fleiri af þeim áhættuþáttum koma fram, sem lýst er í samantektarskjalinu sem tekið var saman í tengslum við skráningu hlutabréfa Össurar á NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn, svo og í kaflanum sem ber yfirskriftina "Áhættuþættir" í árskýrslu Össurar fyrir 2008, eða ef aðrir áhættuþættir koma fram, sem ekki eru fyrirséðir á þessari stundu eða taldir eru óverulegir. Félagið skuldbindur sig ekki til þess að ná markmiðum sínum, né tekur það neina ábyrgð á því að það muni gerast. Fjárfestar eru sér í lagi hvattir til að gefa sérstakan gaum að þeim áhættuþáttum sem lýst er í samantektarskjalinu sem tekið var saman í tengslum við skráningu hlutabréfa Össurar á NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn, ásamt kaflanum um áhættuþætti í ársskýrslu Össurar fyrir árið 2008. |
|||
|