|
|||
2008-03-05 11:36:34 CET 2008-03-05 11:37:35 CET REGULATED INFORMATION Sparisjóður Mýrasýslu - Ársreikningur2007Árangur Sparisjóðs Mýrasýslu sá næstbesti frá upphafi Hagnaður Sparisjóðs Mýrasýslu var 733,7 millj. kr. fyrir skatta og 635,2 millj. kr. eftir skatta árið 2007. Eigið fé Sparisjóðsins jókst um 78,85% frá fyrra ári m.a. vegna breyttra reikningsskilaaðferða í kjölfar innleiðingar alþjóðlegra reikningsskilastaðla. Helstu lykiltölur og aðrar upplýsingar um rekstur Sparisjóðs Mýrasýslu árið 2007 má sjá hér að neðan. Rekstur samstæðunnar ● Samstæðan skilaði 635,2 millj. kr. hagnaði eftir skatta árið 2007, samanborið við 1457,7 millj. kr. á árinu 2006. ● Vaxtatekjur námu 4.258,1millj. kr. árið 2007 en það er 33,9% hækkun frá árinu 2006. ● Vaxtagjöld hækkuðu um 38,6% milli ára og námu 3.485,3 millj. kr. árið 2007. ● Hreinar vaxtatekjur námu 772,8 millj. kr. árið 2007 og hækkuðu því um 16,3% á milli ára. ● Vaxtamunur, þ.e. hreinar vaxtatekjur í hlutfalli af meðalstöðu fjármagns var 1,84% árið 2007 en 2,15% árið 2006 en vaxtamunur vaxtaberandi eigna var 2,32% árið 2007 en 2,59% árið 2006. ● Hreinar rekstrartekjur voru 2.672,5 millj. kr. á árinu á móti 3.951,6 millj. kr. árið 2006. ● Framlag í afskriftarreikning útlána nam 578,9 millj. kr. á árinu sem er hækkun frá 215,4 millj. kr. árið 2006. Í árslok 2007 eru 596,7 millj. kr. í afskriftareikningi útlána sem er 1,72% af útlánum og veittum ábyrgðum sparisjóðsins. ● Önnur rekstrargjöld sparisjóðsins voru 638,7 millj. kr. árið 2007 en voru 461,3 millj. kr. árið 2006, hækkunin er 38,5%. ● Arðsemi eigin fjár Sparisjóðs Mýrasýslu var 10,02% árið 2006 miðað við 43,72% árið 2005. ● Rekstrarkostnaður sem hlutfall af hreinum rekstrartekjum er 50,02% árið 2007 miðað við 25,38% fyrir árið 2006. Rekstrarkostnaður sem hlutfall af eignum er nú 2,8% sem er sama hlutfall og á fyrra ári. Efnahagur og eigið fé samstæðunnar ● Heildareignir samstæðunnar eru 47.698,4 millj. kr. miðað við 36.178,4 millj.kr. í lok árs 2006, hafa þær vaxið um 31,8% milli áranna 2006 og 2007. ● Útlán samstæðunnar hafa aukist um 30,02% á árinu og nema þau 34.766,7 millj. kr. í árslok 2007. ● Innlán samstæðunnar hafa aukist um 20,4% á árinu og nema 17.336,7 millj. kr. í árslok 2007. ● Eigið fé Sparisjóðs Mýrasýslu var 6.338,0 millj. kr. 31. desember 2007 en var 5.211,9 millj. kr. í árslok 2006, aukningin er 21,61% þegar búið er að leiðrétta uppgjör 2006 til samræmis við alþjóðlega reikningskilastaðla. ● Eiginfjárhlutfall samstæðunnar samkvæmt CAD-reglum er 11,64% 31. desember 2007 en var 11,7% þann 31. desember 2006. Fréttir af starfsemi ● Í september var 95% hlutafjár í verðbréfafyrirtækinu NordVest Verðbréfum hf. keypt og hefur viðsnúningur á rekstri NordVest gengið fljótt og vel. ● Á árinu 2007 stóð til að sameina Sparisjóð Skagafjarðar og Sparisjóð Siglufjarðar. Það tókst ekki þar sem tilskilin leyfi hafa ekki fengist frá Fjármálaeftirlitinu en vonast er til að þau fáist í byrjun árs 2008. ● Uppgjör samstæðunnar samanstendur af uppgjöri móðurfélags ásamt dótturfélögum þess, Sparisjóði Siglufjarðar, Sparisjóði Ólafsfjarðar og Veitu fjármálaþjónustu. Töluvert óvissuástand er á fjármálamörkuðum um þessar mundir og ljóst er að afkoma Sparisjóðs Mýrasýslu verður ekki eins góð og á síðasta ári. Töluvert uppbyggingarstarf er framundan við að efla nýjar einingar innan samstæðunnar í Skagafirði og Reykjavík. Óvissa varðandi fjármögnunarmöguleika setur einnig mark sitt á íslensk fjármálafyrirtæki en endurfjármögnunarþörf Sparisjóðs Mýrasýslu er lítil næstu tvö árin sem kemur sér vel við slíkar aðstæður. Sparisjóður Mýrasýslu hefur starfsstöðvar á 5 stöðum sem staðsettar eru í Reykjavík, Akranesi, Siglufirði, Ólafsfirði og Borgarnesi. Í Mars mun Sparisjóðurinn flytja starfsstöð sína í Reykjavík úr Síðumúla í nýtt og glæsilegt húsnæði í Borgartúni 26. Aðalfundur Sparisjóðs Mýrasýslu verður haldinn föstudaginn 4. apríl 2008. Stjórn sparisjóðsins leggur til að greiddur verði arður sem nemur 53% af stofnfé eða 267.661 millj. kr. í arð á árinu 2008 vegna ársins 2007. Ársreikningur Sparisjóðs Mýrasýslu var samþykktur af stjórn sjóðsins þann 4. mars 2008 en meirhluti stjórnar var skipaður konum. |
|||
|