2010-12-22 15:53:55 CET

2010-12-22 15:54:56 CET


REGULATED INFORMATION

This message has been corrected. Click here to view the corrected message

Islandic
Landsvirkjun - Fyrirtækjafréttir

Landsvirkjun kaupir hlut Orkuveitu Húsavíkur í Þeistareykjum



Landsvirkjun og Orkuveita Húsvíkur ehf. hafa náð samkomulagi um kaup
Landsvirkjunar á 28,771% hlut Orkuveitu Húsavíkur ehf. í hlutafélaginu
Þeistareykjum ehf. 

Eftir kaupin á Landsvirkjun tæplega 93% hlut í félaginu en aðrir hluthafar eru
Orkuveita Húsavíkur (3,2%) og Þingeyjarsveit (4,0% rúm). 

Fyrir hlutinn eru greiddar tæpar 14 milljónir bandaríkjadollara sem greitt er í
áföngum þar til orkuvinnsla hefst á umráðasvæði Þeistareykja ehf. 

Þeistareykir ehf. hafa frá árinu 2001 staðið að rannsóknum á möguleikum
jarðhitasvæðisins að Þeistareykjum til jarðhitanýtingar. Hefur félagið fjárfest
verulega í því skyni. Boraðar hafa verið 6 djúpar rannsóknarholur frá þremur
borteigum á austanverðu svæðinu með góðum árangri, en samtals afkasta holurnar
gufu sem jafngildir um 45 MW raforkuframleiðslu. Vísbendingar eru um að þar sé
veruleg framleiðslugeta til viðbótar enda er jarðhitasvæðið á Þeistareykjum
talið vera eitt af stærri jarðhitakerfum Íslands. 

Háhitasvæðin á Norðausturlandi gegna lykilhlutverki í frekari uppbyggingu
raforkuvinnslu á Íslandi. Orkuveita Húsavíkur ehf. hefur með þátttöku sinni í
Þeistareykjum ehf. gegnt mikilvægu hlutverki við undirbúning orkuvinnslu á
svæðinu og mun sem minni hluthafi halda þeirri uppbyggingu áfram. Þessi kaup
gera Landsvirkjun enn betur í stakk búna að vinna að frekari uppbyggingu á
þessu svæði í tengslum við aðra orkukosti fyrirtækisins. 

Samhliða kaupunum hafa Norðurþing og Landsvirkjun gert með sér samstafssamning
um nýtingu raforku á umráðvæði Þeistareykja ehf. Eru aðilar sammála um að
stuðlað verði að því svo sem kostur er að áhugasamir orkukaupendur hefji
orkufreka starfsemi í Þingeyjarsýslum og orkukaup frá Þeistareykjum ehf. og
Landsvirkjun eftir atvikum. 


         Frekari upplýsingar veita:
         Bergur Elías Ágústsson stjórnarformaður Orkuveitu Húsavíkur í síma
464-6100 og 
         Ragna Sara Jónsdóttir yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar í síma
515-9000 eða 849-2122.