2016-11-23 09:51:41 CET

2016-11-23 09:51:41 CET


BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR

Íslenska
Kópavogsbær - Fyrirtækjafréttir

Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir 2017 samþykkt


Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2017 var samþykkt með öllum greiddum
atkvæðum á fundi bæjarstjórnar 22. nóvember. 

Fjárhagsáætlunin var unnin í samvinnu allra flokka í bæjarstjórn Kópavogs.

Í bókun bæjarstjórnar segir: „Fjárhagsáætlun Kópavogs fyrir árið  2017 er unnin
í samvinnu allra bæjarfulltrúa. Þetta verklag endurspeglar þann skilning á
fjármálum bæjarins að allir kjörnir fulltrúar beri þar ábyrgð. Þrátt fyrir 
þessa niðurstöðu hafa flokkarnir fimm ólíkar áherslur og áætlunin breytir ekki
þeirri staðreynd. Hagsmunir bæjarbúa eru að allir þeir fulltrúar sem þeir kusu
komi að þessari vinnu og í þeirri trú er fjárhagsáætlunin unnin. Bæjarfulltrúar
þakka starfsmönnum bæjarins fyrir þeirra framlag til gerðar
fjárhagsáætlunarinnar.“ 

Í fjárhagsáætlun kemur fram að A-hluti bæjarsjóðs verður verður rekinn með 122
milljóna rekstrarafgangi á næsta ári. Þá verður samstæða Kópavogsbæjar rekin
með 290 milljón króna rekstrarafgangi á næsta ári. 

Samkvæmt áætluninni mun skuldahlutfall bæjarins lækka umstalsvert og hraðar en
aðlögunaráætlun gerði ráð fyrir. Það verður komið niður í um 140% í árslok 2017
og því komið vel undir hið lögboðna 150% hlutfall.