2012-03-26 10:34:52 CEST

2012-03-26 10:35:53 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sláturfélag Suðurlands svf. - Company Announcement (is)

Niðurstöður aðalfundar sem haldinn var 23. mars 2012



Eftirfarandi tillögur voru samþykktar á aðalfundi.


1.  Vextir af stofnsjóði og greiðsla arðs.

Samþykkt tillaga stjórnar SS að greiddur verði 15,224%  arður af B-deild
stofnsjóðs þar af er verðbótaþáttur 5,224% skv. 1. mgr. 14. gr. samþykkta
félagsins, alls kr. 30.448.000,- eða 0,15 kr. á hvern útgefin hlut. Jafnframt
að reiknaðir verði 15,224% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs,
alls kr. 38.313.239,-  Arðleysisdagur er 26. mars og arðréttindadagur er 28.
mars.  Greiðsludagur arðs er 30. apríl n.k. 



2.  Tillaga stjórnar vegna kaupa á hlutum í B-deild stofnsjóðs.

Samþykkt tillaga stjórnar SS að stefna að lækkun hluta í B-deild stofnsjóðs
félagsins með skipulegum kaupum á hlutum í B-deild stofnsjóðs og niðurfærslu
þeirra hluta í kjölfarið, sem hugsanlega taki til allra hluta í B-deild
stofnsjóðs. Stjórn félagsins er veitt umboð til kaupa á hlutum í B-deild
stofnsjóðs á gengi 1,05 miðað við nafnverð þeirra, og fara umfram þau 10%
vikmörk sem samþykktir og lög heimila, enda tilgangur kaupanna að færa hlutina
strax niður á eftir. Tryggt skal að allir eigendur hluta í B-deild stofnsjóðs
sitji við sama borð í þessum efnum, þannig að öllum þeim bjóðist að selja
félaginu B-deildar stofnsjóðshluti sína á sama verði og í sama mæli. Ekki skal
varið hærri fjárhæð til kaupanna en eðlilegt má teljast af þessu tilefni með
hliðsjón af efnahag félagsins. 

Samþykkt þessi er bundin því að aukinn meirihluti félagsmanna á aðalfundi
samþykki tillöguna og að meirihluti eigenda B-deildar stofnsjóðshluta leggist
ekki gegn áformunum á sérstökum félagsfundi þeirra sem haldinn skal strax að
loknum aðalfundinum ef tillagan verður samþykkt þar. 

Lagt er fyrir stjórn að boða án tafar til aukafélagsfundar Sláturfélags
Suðurlands svf. ef áform þessi ganga eftir, þar sem á dagskrá verði formleg
tillaga um lækkun hluta í B-deild stofnsjóðs og tilheyrandi tillaga um
breytingu á samþykktum félagsins. Tillögunni skulu fylgja upplýsingar um
uppkaup félagsins á eigin hlutum í B-deild stofnsjóðs, í hvaða mæli þau eru og
við hvaða verði. 



3.  Kosning stjórnar.

Stjórn félagsins eftir kosningar skipa eftirtaldir:



Aðalmenn:

Hallfreður Vilhjálmsson, formaður, kt. 031259-4449

Sigurlaug Jónsdóttir, varaformaður, kt. 170657-2099

Aðalsteinn Guðmundsson, ritari, kt. 010552-2069

Kristinn Jónsson, kt. 020460-3939

Guðmundur H. Davíðsson, kt. 020659-2119



Til vara:

Brynjólfur Ottesen, kt. 240860-2609

Ólafur Þorsteinn Gunnarsson, kt. 021065-2939

Björn Harðarson, kt. 011059-3769

Guðmundur Ómar Helgason, kt. 290672-3689

Guðmundur Jónsson, kt. 280852-2879



4.  Kosning skoðunarmanna og endurskoðenda.

Löggiltur endurskoðandi:

Deloitte hf., Smáratorgi 3, 201 Kópavogur



Skoðunarmenn:

Aðalmenn:

Ásbjörn Sigurgeirsson, kt. 200752-2529

Kjartan Magnússon, kt. 250657-2939



Varaskoðunarmenn:

Esther Guðjónsdóttir, kt. 010366-5509

Bjarni Jónsson, kt. 300952-3649



5. Laun stjórnar og skoðunarmanna.



Stjórnarformaður kr. 1.065.000,-  á ári.

Meðstjórnendur kr.  532.500,-  á ári.

Skoðunarmenn kr. 140.000,- á ári.

Endurskoðunarnefnd(stjórnarmaður) kr. 140.000,-  á ári.