2017-05-24 18:09:42 CEST

2017-05-24 18:09:42 CEST


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Reitir fasteignafélag hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

REITIR: Útboð á skuldabréfum 30. maí 2017


Reitir fasteignafélag hf. efnir til útboðs á skuldabréfum þriðjudaginn 30. maí
næstkomandi. Boðin verða til sölu skuldabréf í flokkunum REITIR151244,
REITIR151124 og REITIR 22, sem allir eru veðtryggðir með fyrirliggjandi almennu
tryggingarfyrirkomulagi félagsins. Hinir tveir fyrrnefndu eru verðtryggðir með
jöfnum greiðslum en REITIR 22 er óverðtryggður með einni afborgun höfuðstóls
eftir sex ár og vaxtagreiðslum á líftíma flokksins. 

Fjárfestingabankasvið Arion banka hf. hefur umsjón með útboðinu. Heildarstærð
útboðsins getur verið allt að 4.560 milljónir kr. að nafnvirði. Útboðið verður
með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu
ávöxtunarkröfu sem tekið er í hverjum flokki. Félagið áskilur sér rétt til þess
að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. 

Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. 1. mgr., 1. tl. a og b, 50.
greinar laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Grunnlýsing, endanlegir
skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindra skuldabréfaflokka eru
birt á vefsíðu félagsins, reitir.is/fjarfestar. Tilkynningar sem Reitir
fasteignafélag hf. hefur birt í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá
birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins. 


Nánari upplýsingar veita:
Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, á netfanginu einar@reitir.is eða í síma 669
4416, og Birgir Guðfinnsson, markaðsviðskiptum fjárfestingarbankasviðs Arion
banka hf., á netfanginu verdbrefamidlun@arionbanki.is eða í síma 444 7337.