|
|||
2016-09-16 15:00:24 CEST 2016-09-16 15:00:24 CEST SÄÄNNELTY TIETO Hagar hf. - FyrirtækjafréttirHagar hf. - Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunarÁ aðalfundi Haga hf. sem haldinn var þann 3. júní 2016 var samþykkt að heimila félaginu að kaupa á næstu 18 mánuðum hlutabréf í félaginu fyrir allt að 10% af heildarhlutafé félagsins í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun, skv. 116. gr. laga um verðbréfaviðskipti eða á grundvelli 1. tölul. 3. mgr. 115. gr. og 2. mgr. 119. gr. laga um verðbréfaviðskipti og reglugerða sem settar eru á grundvelli sömu ákvæða. Stjórn Haga hf. hefur á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Áætlunin mun hefjast þann 19.september n.k. Endurkaupin munu að hámarki nema 20.000.000 hlutum eða um 1,71% af útgefnum hlutum í félaginu, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 1.000 milljónir króna. Áætlunin er í gildi til 7. júní 2017, eða fram að aðalfundi félagsins 2017, hvort sem fyrr verður, nema ef skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í höndum Arctica Finance hf. og verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005. Kaupin verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags verða að hámarki 1.239.013 hlutir sem jafngildir 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins í Kauphöll Nasdaq Iceland í ágúst 2016. Endurgjald fyrir keypta hluti skal ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra. Viðskipti félagsins með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í samræmi við lög og reglugerðir. Nánari upplýsingar veitir Aðalheiður Fritzdóttir í netfangi heida@hagar.is |
|||
|