2015-08-13 12:47:01 CEST

2015-08-13 12:48:02 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsnet hf. - Ársreikningur

Árshlutareikningur Landsnets hf. fyrir tímabilið janúar-júní 2015


Hagnaður tímabilsins nam 1.573 milljónum króna


Hagnaður Landsnets hf. samkvæmt rekstrarreikningi nam 1.573 mkr. fyrstu 6
mánuði ársins 2015 samanborið við hagnað að fjárhæð 1.231 mkr. fyrir sama
tímabil árið 2014. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA)
nam 5.239 mkr. samanborið 4.446 mkr. á sama tímabili fyrra árs og hækkar um 793
mkr. á milli ára. Hrein fjármagnsgjöld nema samtals 1.863 mkr. á tímabilinu en
voru 1.565 mkr. á sama tímabili ársins 2014. Hrein fjármagnsgjöld hækka því um
298 mkr. á tímabilinu janúar-júní 2015 í samanburði við sama tímabil 2014. 

Eiginfjárhlutfall í lok júní var 26,9% samanborið við 23,5% í lok ársins 2014.
Eigið fé í lok tímabilsins nam 20.782 mkr. samanborið við 19.208 mkr. í lok árs
2014. Heildareignir félagsins í lok júní námu 77.138 mkr. samanborið við 81.859
mkr. í lok árs 2014. Heildarskuldir námu 56.356 mkr. samanborið við 62.651 mkr.
í lok árs 2014. 

Lausafjárstaða félagsins er sterk, í lok júní nam handbært fé 7.335 mkr.
Handbært fé frá rekstri fyrstu 6 mánuði ársins nam 3.300 mkr. 

Árshlutareikningur Landsnets hf. var samþykktur á fundi stjórnar 13. ágúst 2015.





Frekari upplýsingar veitir:
Guðlaug Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri fjármála, sími 563 9311 eða netfang
gudlaugs@landsnet.is