|
|||
2024-05-23 01:06:09 CEST 2024-05-23 01:06:09 CEST REGULATED INFORMATION Íslandshótel hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarÍslandshótel hf. - fallið frá hlutafjárútboði.Seljendur hlutabréfa í almennu hlutafjárútboði Íslandshótela hafa ákveðið að falla frá útboði og þar með skráningu félagsins á Aðalmarkað Nasdaq Iceland en almennu hlutafjárútboði Íslandshótela lauk klukkan 16:00 í dag. Í ljósi þessarar ákvörðunar munu allar áskriftir falla sjálfkrafa niður. Vel á þriðja þúsund aðilar tóku þátt í útboðinu og skráðu sig fyrir hlutum að verðmæti ríflega 8 milljarðar króna. Það fékkst þó ekki áskrift í útboðinu fyrir öllum boðnum hlutum og því hafa seljendur ákveðið að falla frá útboðinu, í samræmi við áskilnað sinn þar að lútandi. |
|||
|