2012-03-02 16:28:44 CET

2012-03-02 16:30:02 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
RARIK ohf. - Ársreikningur

Ársreikningur RARIK fyrir árið 2011


Samkvæmt rekstrarreikningi var hagnaður á árinu 1.014 milljónir króna en
rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var 3.520
milljónir króna eða 32,7% af veltu tíma-bilsins og samanborið við 31,5% á árinu
2010. Handbært fé frá rekstri var 2.779 milljónir króna. 

Rekstrarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á árinu 2011 var
2.221 milljónir króna sem rúmlega 24% aukning frá fyrra ári og í samræmi við
áætlanir. Vegna veikingar krónunnar og verðlagsbreytinga varð niðurstaða
fjármagnsliða neikvæð um tæpar 1.233 milljónir króna, en var á árinu 2010
jákvæð um 56 milljónir króna. 

Rekstrartekjur hækkuðu um rúm 11% frá árinu 2010 og voru 10.768 milljónir
króna, en rekstrargjöld hækkuðu um rúm 8% og voru 8.547 milljónir króna. 

Fjármagnsgjöld á árinu 2011 voru eins og áður segir neikvæð um 1.233 milljónir
króna sem má að stórum hluta rekja til verðbólgu og veikingar krónunnar, bæði
hvað varðar innlenda og erlenda lánasamninga. 

Áhrif Landsnets, sem er hlutdeildarfélag RARIK, á afkomu ársins voru jákvæð um
189 milljónir króna. 

Samkvæmt efnahagsreikningi voru heildareignir RARIK í árslok 37.262 milljónir
króna, heildarskuldir námu 17.935 milljónum króna, eigið fé var 19.327
milljónir króna og eiginfjárhlutfall því 51,9% samanborið við 49,5% í árslok
2010. 

Ársreikningur RARIK ohf. er gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum.
Horfur

Horfur í rekstri RARIK á árinu 2012 eru ásættanlegar, en afkoman á næstu
tímabilum ræðst hins vegar af almennri þróun efnahagsmála, verðlagsþróun og
gengi krónunnar. Áætlanir ársins 2012 gera ráð fyrir hagnaði af rekstri
félagsins í samræmi við langtíma fjárfestingaþörf í dreifikerfinu. Gjaldskrá
fyrir dreifingu var hækkuð um áramótin og var hækkunin 7,5% í dreifbýli og 5% í
þéttbýli. Ekki er gert ráð fyrir frekari hækkunum á árinu. Gera má ráð fyrir að
við næstu hækkun þurfi enn að auka þann mun sem er á gjaldskrám í dreifbýli og
þéttbýli, enda hefur RARIK ekki nýtt sér að fullu tekjuheimildir í raforkulögum
við gjaldskrárgerð. Á það einkum við um gjaldskrá í dreifbýli. Vextir erlendra
lána hafa verið hagstæðir undanfarin misseri og gert er ráð fyrir að þeir
haldist sambærilegir út árið 2012. 

Gert er ráð fyrir aukningu í fjárfestingum í dreifikerfum frá fyrra ári, en frá
árinu 2008 hefur fjárfestingum verið frestað samhliða niðurskurði í rekstri
félagsins vegna stöðu efnahagsmála, einkum á árunum 2009 og 2010. Til viðbótar
hefðbundinni endurnýjun í dreifikerfinu verður í ár ráðist í nýtt verkefni við
hitaveitu til Skagastrandar. Ekki er þörf á nýrri fjármögnun á næstu þremur
árum vegna hefðbundinna fjárfestingaverkefna RARIK, þó er gert ráð fyrir
sérstakri lántöku vegna hitaveituverkefnisins á árunum 2012 og 2013. 

Á árinu 2012 er gert ráð fyrir að orkusala og dreifing aukist lítillega, sem er
í samræmi við þróun síðustu ára. 

Ársreikningur RARIK 2011 var samþykktur á fundi stjórnar þann 2. mars 2012 og
heimilaði stjórn birtingu hans í Kauphöll. 

Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK í síma
528-9000.