2024-04-24 16:16:35 CEST

2024-04-24 16:16:35 CEST


Islandic English
Fly Play hf. - Breytingar á hlutafé og vægi atkvæða

Fly Play hf.: Hækkun hlutafjár


Vísað er til tilkynningu Fly Play hf. („PLAY“ eða „félagið“) frá 11. apríl 2024 um niðurstöður úr fjármögnunarlotu. Á fundi sínum í dag ákvað stjórn PLAY að nýta heimild þá sem aðalfundur veitti til að hækka hlutafé með útgáfu nýrra hluta, um allt að 1.200.000.000 hluti að nafnvirði. Eins og áður hefur komið fram verður heimildin ekki að fullu nýtt.

Stjórn félagsins hefur nú ákveðið að hækka hlutafé félagsins um kr. 1.023.155.559 að nafnvirði með útgáfu nýrra hluta. Hver hlutur er 1 króna að nafnverði. Afhending hinna nýju hluta til fjárfesta fer fram þann 29. apríl 2024 og ráðgert er að viðskipti með hina nýju hluti hefjast á Nasdaq First North Growth Market Iceland sama dag undir auðkenninu PLAY (ISIN: IS0000032936).

Samtals útgefnir hlutir í PLAY eftir hækkunina eru 1.891.598.895.