2013-09-06 00:48:18 CEST

2013-09-06 00:49:18 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Icelandair Group hf. - Fyrirtækjafréttir

Flutningatölur ágúst 2013


Í ágúst flutti félagið yfir 300 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir
11% fleiri en í ágúst á síðasta ári.  Framboðsaukning á milli ára nam 11% og
sætanýting var 85,6% samanborið við 84,9% á sama tíma í fyrra.  Farþegum
fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 16,4% og voru þeir 52% af
heildarfarþegafjölda félagsins í millilandaflugi í ágúst. 

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru tæplega 33 þúsund í ágúst og
fækkaði um 12% á milli ára.  Framboð félagsins í ágúst var dregið saman um 13%
samanborið við ágúst 2012. Sætanýting nam 73,5% og jókst um 3,5 prósentustig á
milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 10% á milli ára. 
Fraktflutningar jukust um 12% frá því á síðasta ári. Fjöldi seldra gistinátta á
hótelum félagsins jókst um 2% milli ára. Herbergjanýting var 88,2% samanborið
við 88,1% í ágúst í fyrra. 



MILLILANDAFLUG                      ÁGÚ 13      BR. (%)     ÁTÞ 13      BR. (%)
-------------------------------------------------------------------------------
Fjöldi farþega                     300.089          11%  1.573.395          12%
Sætanýting                           85,6%   0,7 %-stig      80,5%  -1,2 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000)  1.029,2          11%    5.676,7          17%
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG     ÁGÚ 13      BR. (%)     ÁTÞ 13      BR. (%)
-------------------------------------------------------------------------------
Fjöldi farþega                      32.935         -12%    214.804         -10%
Sætanýting                           73,5%   3,5 %-stig      71,7%   3,3 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000)     20,7         -13%      110,8         -14%
LEIGUFLUG                           ÁGÚ 13      BR. (%)     ÁTÞ 13      BR. (%)
-------------------------------------------------------------------------------
Flugvélanýting                       90,9%  -1,1 %-stig      90,5%  -0,9 %-stig
Seldir blokktímar                    2.512         -10%     19.102         -11%
FRAKTFLUTNINGAR                     ÁGÚ 13      BR. (%)     ÁTÞ 13      BR. (%)
-------------------------------------------------------------------------------
Framboðnir tonnkm. (ATK´000)        21.102          12%    133.385          10%
Seldir tonnkm. (FTK´000)             7.118          12%     61.462           5%
HÓTEL                               ÁGÚ 13      BR. (%)     ÁTÞ 13      BR. (%)
-------------------------------------------------------------------------------
Framboðnar gistinætur               34.535           2%    223.567          10%
Seldar gistinætur                   30.459           2%    167.046           9%
Herbergjanýting                      88,2%   0,1 %-stig      74,7%  -0,5 %-stig



Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s:
840-7010