2016-11-08 17:42:13 CET

2016-11-08 17:42:13 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kópavogsbær - Fyrirtækjafréttir

Fjárhagsáætlun Kópavogs 2017


Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2017 var lögð fram til fyrri umræðu í
bæjarstjórn Kópavogs í dag. Þá var einnig lögð fram langtímaáætlun fyrir
tímabilið 2018-2020. 

Fjárhagsáætlun bæjarins er unnin í samvinnu allra flokkanna í bæjarstjórn.

Samkvæmt áætluninni mun skuldahlutfall bæjarins lækka umstalsvert og hraðar en
aðlögunaráætlun gerði ráð fyrir. Það verður komið niður í um 140% í árslok 2017
og því komið vel undir hið lögboðna 150% hlutfall. 

A-hluti bæjarsjóðs verður rekinn með 136 milljóna rekstrarafgangi á næsta ári
að því er fram kemur í fjárhagsáætlunni. Þá verður samstæða Kópavogsbæjar rekin
með 259 milljón króna rekstrarafgangi á næsta ári. 

Lagt er til að fasteignaskattur lækki fimmta árið í röð, verði 0,255% í stað
0,260% áður og að holræsagjald lækki úr 0,169% í 0,14%. 

Gert er ráð fyrir að laun og launatengd gjöld verði 55,2% á næsta ári af
rekstrartekjum bæjarins. Hlutfallið er tæplega 51% árið 2016 og er hækkunin
tilkomin vegna launahækkana og hækkunar launatengdra gjalda undanfarin misseri.