2011-01-18 17:01:46 CET

2011-01-18 17:02:47 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 31 0124



Föstudaginn 21. janúar kl. 14:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins með
tilboðsfyrirkomulagi. 

Boðin verða til sölu bréf í nýjum tuttugu ára flokki RIKB 31 0124.
Heildarfjárhæð samþykktra tilboða verður tilkynnt að loknu útboði. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð
sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa
er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir
fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 26. janúar 2011.

Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir munu lánamál ríkisins bjóða
jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu, til
aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 25.
janúar 2011. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 26. janúar 2011. 

Niðurstaða útboðs verður birt í lok viðskiptadags.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569
9633.