|
|||
2018-07-20 17:30:00 CEST 2018-07-20 17:30:00 CEST REGULATED INFORMATION Vátryggingafélag Íslands hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarVÍS: Samsett hlutfall og ávöxtun fjáreigna í júní 2018Samsett hlutfall í júní var 97,0% en það var 91,9% í júní 2017. Samsett hlutfall það sem af er ári er 103,3% og samsett hlutfall síðustu 12 mánuði er 99,4%. Nafnhækkun fjárfestingaeigna var 0,7% í júní en nafnhækkun frá áramótum er 4,1%. VÍS greiddi viðskiptavinum sínum 1,4 milljarða króna í tjónabætur í júní og hefur greitt viðskiptavinum 7,8 milljarða króna í tjónabætur það sem af er ári. *Samsett hlutfall er tjónakostnaður, endurtryggingakostnaður og rekstrarkostnaður sem hlutfall af iðgjöldum Nánari upplýsingar veitir Andri Ólafsson samskiptastjóri í síma 660-5105. |
|||
|