2010-11-16 10:05:39 CET

2010-11-16 10:06:35 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Íbúðalánasjóður - Niðurstaða útboðs íbúðabréfa


Íbúðalánasjóður tilkynnir niðurstöðu í útboði íbúðabréfa, dags. 15. nóvember
2010. Alls bárust gild tilboð að nafnvirði 8,290 milljarðar króna. Ákveðið var
að taka tilboðum í eftirtalin íbúðabréf: 

HFF150224 að nafnvirði 1,270 milljarður króna, vegin ávöxtunarkrafa án 
þóknunar er 3,11%
HFF150434 að nafnvirði 1,615 milljarður króna, vegin ávöxtunarkrafa án þóknunar
er 3,34% 
HFF150644 að nafnvirði 2,410 milljarðar króna, vegin ávöxtunarkrafa án þóknunar
er 3,39% 

Vegin heildarávöxtunarkrafa tekinna tilboða án þóknunar er 3,31% og 3,33% með
þóknun. Uppgjörsdagur viðskiptanna er 22. nóvember 2010. 
Nánari upplýsingar veita Ívar Ragnarsson sími 569 6990, Herdís Einarsdóttir
sími 569 6993 og Ingi Kristinn Pálsson 569 6995.