2014-02-13 09:49:38 CET

2014-02-13 09:50:39 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsnet hf. - Ársreikningur

Ársreikningur Landsnets hf. fyrir árið 2013


- Hagnaður ársins nam 2.183 milljónum króna -


Hagnaður Landsnets hf. samkvæmt rekstrarreikningi nam 2.183 mkr. fyrir árið
2013 samanborið við hagnað að fjárhæð 801 mkr. á árinu 2012. 

Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði (EBIT) nam 6.568 mkr. samanborið við 5.306
mkr. á fyrra ári og hækkar því um 1.262 mkr. á milli ára. Hækkun á
rekstrarhagnaði fyrir fjármagnsliði skýrist einkum af hækkun gjaldskrár til
stórnotenda í byrjun árs. 

Hrein fjármagnsgjöld nema samtals 3.870 mkr. á árinu 2013 á móti 4.339 mkr. á
árinu 2012. Þau lækka um 469 mkr. en það skýrist einkum af lægri verðbólgu en
stærsti hluti lánasafns félagsins er í íslenskum krónum. 

Fjárfestingar voru nokkuð hærri á árinu en á fyrra ári og numu um 6.506 mkr.
samanborið við 1.591 mkr. árið áður. Helstu fjárfestingar ársins voru lagning
sæstrengs til Vestmannaeyja og bygging launaflsvirkis við Grundartanga, en
báðar þessar fjárfestingar eru til að auka áreiðanleika afhendingar raforku í
flutningskerfinu. Þá var einnig lokið byggingu tengivirkis og línu við
Búðarháls. Heildarfjárhæð þessara fjárfestinga nam um 5.000 mkr. 

Eiginfjárhlutfall í árslok var 19,9% samanborið við 17,7% í lok fyrra árs.
Eigið fé í árslok nam 15.446 mkr. samanborið við 13.263 í lok árs 2012.
Heildareignir félagsins í árslok námu 77.608 mkr. samanborið við 74.873 mkr. í
lok fyrra árs. Heildarskuldir námu 62.162 mkr. samanborið við 61.610 mkr. í lok
fyrra árs. 

Lausafjárstaða félagsins er sterk, í árslok nam handbært fé 9.917 mkr. Handbært
fé frá rekstri nam 7.733 mkr. árið 2013 samanborið við 5.808 mkr. árið 2012. 

Rekstrarniðurstaða ársins er betri en áætlanir félagsins gerðu ráð fyrir og
liggur það aðallega í jákvæðari niðurstöðu fjármagnsliða. Rekstrarhæfi
félagsins er mjög gott. Samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2014 mun handbært fé
standa undir fjárfestingum og afborgunum lána. 

Ársreikningur Landsnets hf. var samþykktur á fundi stjórnar 12. febrúar 2014.



Helstu niðurstöður rekstrarreiknings, lykiltölur efnahagsreiknings og
kennitölur (fjárhæðir eru í þúsundum króna): 

Sjá viðhengi: Fréttatilkynning



Frekari upplýsingar veitir:
Guðlaug Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri fjármála,
sími 563 9311 eða netfang gudlaugs@landsnet.is.