2014-06-11 14:55:56 CEST

2014-06-11 14:56:57 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Fyrirtækjafréttir

Reginn hf. - Óveruleg áhrif vegna breytinga á fasteignamati 2015


Komið hefur fram í fjölmiðlum að Þjóðskrá Íslands hafi kynnt breytingu á
útreikningi á fasteignamati íbúða- og atvinnuhúsnæði. „Þessar breytingar hófust
árið 2009 þegar nýjar og nákvæmari aðferðir voru teknar upp við mat á
íbúðarhúsnæði. Nú eru teknar upp sambærilegar aðferðir við mat á atvinnuhúsnæði
og húsum á bújörðum til sveita, sem endurspegla betur markaðsverðmæti á hverjum
tíma“. 

Reginn hf. hefur nú yfirfarið nýtt fasteignamat á öllum sínum fasteignum þar á
meðal nýkeyptum eignum. Niðurstaðan er sú að hækkun á fasteignamatinu fyrir
árið 2015 er innan verðlagsviðmiðana sem rekstraráætlanir félagsins taka mið
af. Því mun breyting á fasteignamati félagins fyrir árið 2015 vera innan
áætlana félagsins. Þessi niðurstaða á fasteignamati eignasafnsins mun því
hvorki hafa áhrif á áætlanir félagsins né rekstrarafkomu þess miðað við
núverandi rekstur. 

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

S: 5128900 / 8996262