2014-05-19 10:30:14 CEST

2014-05-19 10:31:15 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hampiðjan hf. - Company Announcement (is)

Hampidjan USA kaupir 65% hlut í Swan Net L.L.C í Seattle USA


Hampidjan USA í Seattle, sem er dótturfyrirtæki í 100% eigu Hampiðjunnar hf.,
hefur keypt 65% hlut í netaverkstæðinu Swan Net L.L.C í Seattle USA.  Þrír
stofnendur ásamt einum smærri meðeiganda hafa verið eigendur Swan Net frá
stofnun þess 1995 og keypti Hampiðjan hlut tveggja þeirra í nánu samráði við
þriðja aðaleigandann og framkvæmdastjórann, Seamus Melly.   Seamus mun áfram
eiga sinn upprunalega hlut sem er 32,5%.  Kaupverðið var USD 2.3 milljónir og
hefur það verið greitt að fullu. 



Hjörtur Erlendsson, forstjóri Hampiðjunnar:

Hampidjan USA hefur framleitt og selt Gloríu flottroll og flottrollspoka fyrir
uppsjávarskip sem stunda veiðar við vesturströnd Bandaríkjanna ásamt því að
selja aðrar vörur Hampiðjunnar.  Góður árangur hefur náðst með þessum trollum
við veiðar á alaskaufsa og hafa þau virkað sérstaklega vel þegar fiskurinn er
dreifður en ekki í þéttum torfum.  Einnig hefur náðst góður árangur á þessu
svæði með Dynex Togtaugar úr ofurefnum í stað hefðbundinna togvíra úr stáli. 

Swan Net í Seattle er eitt stærsta netaverkstæði Bandaríkjanna og þjónar það
aðallega uppsjávarflotanum sem gerður er út frá Seattle og Dutch Harbor í
Alaska og sem veiðir m.a. alaskaufsa.   Starfstöðvar Swan Net eru tvær,
höfuðstöðvar í  Seattle og þjónustustöð í Dutch Harbor á Aleutian eyjunum nyrst
við Kyrrahafið, en eyjaröðin skilur að Kyrrahaf og Beringshaf.   Með því að
sameina rekstur Hampidjan USA og Swan Net undir nafni Swan Net og breyta
Hampidjan USA í eignarhaldsfélag verður staða fyrirtækisins afar sterk á þessu
svæði. 

Framkvæmdastjóri og einn stofnenda Swan Net, Seamus Melly mun áfram veita
fyrirtækinu forstöðu.  Víðir Vernharðsson sem hefur verið framkvæmdastjóri
Hampidjan USA undanfarin 6 ár verður einn af lykilmönnum sameinaðs félags og
kemur til með að hafa umsjón með Gloríutrollum áfram ásamt því að sinna öðrum
stjórnunarstörfum hjá Swan Net. 

Við erum sérstaklega ánægð með að fá Seamus Melly til liðs við okkur enda nýtur
hann mikillar virðingar á þessu svæði fyrir framleiðslu og uppsetningu á
vönduðum veiðarfærum og fyrir góða þjónustu sem er afar mikilvæg á þessum
markaði.  Seamus hefur sýnt það og sannað að hann er góður rekstrarmaður og
undir stjórn hans hefur rekstur Swan Net vaxið og dafnað og skilað góðum
hagnaði undanfarin mörg ár.