|
|||
2012-08-03 17:30:54 CEST 2012-08-03 17:31:58 CEST REGULATED INFORMATION Marel hf. - FyrirtækjafréttirMarel hf. : Uppgjör á kauprétti með reiðuféKaupréttir að 375.000 hlutum í Marel hf. sem veittir voru þann 3. júní 2008 til Theo Bruinsma, sem áður gegndi starfi framkvæmdastjóra hjá Stork Townsend og núverandi stjórnarmaður í Marel hf., voru lausir til innlausnar þann 1. júlí 2012. Hann hefur nú óskað eftir að nýta kauprétt þennan, en með hliðsjón af hömlum í lögum um hlutafélög og lögum um gjaldeyrismál auk ákvæða kaupréttarsamnings, munu eiginleg viðskipti með hluti í félaginu ekki eiga sér stað. Félagið mun þess í stað gera samninginn upp með sams konar hætti og ef slík viðskipti hefðu átt sér stað, þ.e. greiða Theo Bruinsma fjárhæð sem samsvarar mismuni kaupréttargengis (87,41 kr.) og markaðsgengis (139,50 kr.) margfaldað með fjölda þeirra hluta sem hann átti kauprétt að. Sú greiðsla nemur sem samsvarar 127.000 evrum. Eftir þetta uppgjör á Theo Bruinsma ekki kauprétt að fleiri hlutum í Marel hf. |
|||
|