|
|||
![]() |
|||
2011-03-28 13:46:53 CEST 2011-03-28 13:47:54 CEST REGULATED INFORMATION This message has been corrected. Click here to view the corrected message Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstöður hluthafafundaLánasjóður sveitarfélaga ohf. - AÐALFUNDUR 2011Samþykktir aðalfundar 25. mars 2011 Aðalfundur Lánsjóðs sveitarfélaga ohf. sem fram fór á Hilton Nordice Reykjavík var vel sóttur af hluthöfum. Meðfylgjandi eru helstu niðurstöður fundarins. Tillögur samþykktar á aðalfundi Lánsjóðs sveitarfélaga ohf. 1. Ársreikningur og skýrsla stjórnar voru samþykkt samhljóða. 2. Lögð fram og samþykkt tillaga um að greiða ekki út arð vegna reikningsársins 2010. 3. Kosning stjórnar og varastjórnar Eftirtaldir aðilar voru kosnir í stjórn félagsins til næsta aðalfundar: Elliði Vignisson, Vestmannaeyjabæ Kristinn Jónasson, Snæfellsbæ Magnús B. Jónsson, Sveitarfélaginu Skagaströnd Svanfríður Inga Jónasdóttir, Dalvíkurbyggð Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, Reykjavíkurborg Magnús B. Jónsson var kjörinn formaður stjórnar með lófataki. Eftirtaldir aðilar voru kosnir í varastjórn félagsins til næsta aðalfundar: Ásta Stefánsdóttir, Sveitarfélaginu Árborg Bryndís Gunnlaugsdóttir, Grindavíkurkaupstað Geir K. Aðalsteinsson, Akureyri Hilmar Sigurðsson, Reykjavíkurborg Páll Björgvin Guðmundsson, Fjarðarbyggð 4. Samþykkt var að endurskoðunarskrifstofan KPMG ehf. yrði endurskoðandi félagsins. 5. Starfskjarastefna félagsins var staðfest. 6. Samþykkt tillaga um stjórnarlaun vegna ársins 2011. |
|||
|