2015-05-18 17:54:40 CEST

2015-05-18 17:55:21 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Eik fasteignafélag hf. - Boðun hluthafafundar

Eik fasteignafélag hf.: Framboð til stjórnar Eikar fasteignafélags hf. og Ársskýrsla 2014


Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf. verður haldinn þann  21. maí 2015 kl.
09:00 á 20. hæð í Turninum, Smáratorgi 3, Kópavogi.

Framboðsfrestur til stjórnar Eikar fasteignafélags hf. rann út 16. maí sl.
Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins:

- Agla Elísabet Hendriksdóttir, kennitala: 300167-5869.
- Arna Harðardóttir, kennitala: 061065-2969.
- Eyjólfur Árni Rafnsson, kennitala: 210457-3649.
- Frosti Bergsson, kennitala: 301248-2969.
- Stefán Árni Auðólfsson, kennitala: 210772-4729.

Stjórn hefur metið öll framboð til stjórnar gild, sbr. 63. gr. a laga um
hlutafélög nr. 2/1995.
Samkvæmt samþykktum félagsins skal stjórnin skipuð fimm mönnum og er því
sjálfkjörið í stjórn félagsins.
Nánari upplýsingar um frambjóðendur er að finna í viðhengi.

Endanleg dagskrá aðalfundar
Engar breytingatillögur bárust félaginu og er endanleg dagskrá fundarins
eftirfarandi:
 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins síðastliðið starfsár
 2. Ársreikningur og samstæðureikningur félagsins, ásamt skýrslu endurskoðanda,
    er lagður fram til staðfestingar og ákvörðun er tekin um hvernig fara skuli
    með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu
 3. Ákvörðun um þóknun til stjórnar fyrir störf þeirra fyrir komandi starfsár,
    að fengnum tillögum félagsstjórnar
 4. Tillaga félagsstjórnar um starfskjarastefnu félagsins
 5. Kosning félagsstjórnar
 6. Kosning löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarfélags
 7. Önnur mál sem löglega eru fram borin

Stjórn  félagsins leggur til við aðalfund  félagsins að félagið greiði hluthöfum
arð  sem nemur kr.  0,17 á hlut fyrir  árið 2014. Heildarfjárhæð arðgreiðslunnar
verði     580.000.000 kr.     Arðsákvörðunardagur    verði    21. maí    2015 og
arðsréttindadagur  verði 26. maí 2015 sem þýðir að  skráðir hluthafar í lok dags
26. maí  2015 eiga  rétt  á  arðgreiðslu.  Arðleysisdagur,  það  er sá dagur sem
viðskipti   hefjast   með   hlutabréf   félagsins   án  réttar  til  arðs  vegna
reikningsársins  2014, verði  22. maí  2015, sem  er fyrsti viðskiptadagur eftir
arðsákvörðunardag.   Útborgunardagur   verði  3. júní  2015 og  greitt  verði  í
íslenskum krónum.

Ársskýrsla 2014
Meðfylgjandi er auk þess Ársskýrsla 2014, en hana má einnig finna á heimasíðu
félagsins, www.eik.is/fjarfestar.


[HUG#1922223]