|
|||
![]() |
|||
2013-04-22 11:29:15 CEST 2013-04-22 11:30:17 CEST REGULATED INFORMATION HB Grandi hf. - Minutes of extraordinary general meeting (is)HB Grandi – Niðurstöður aðalfundar haldinn 19. apríl 2013Aðalfundur samþykkti samhljóða bæði ársreikning félagsins og skýrslu stjórnar Fundurinn samþykkti eftirfarandi tillögur: Tillaga um greiðslu arðs Aðalfundur HB Granda hf. haldinn 19. apríl 2013 samþykkir að greidd verði 1,00 kr. á hlut í arð vegna ársins 2012, alls að fjárhæð 1.698.033.723 kr. Arðurinn verður greiddur 30. apríl 2013. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 19. apríl 2013 og arðleysisdagur því 22. apríl 2013. Arðsréttindadagur er 24. apríl 2013 (arður greiðist þeim sem skráðir eru í hlutaskrá að loknu uppgjöri verðbréfaskráningar Íslands fyrir kl. 12:00 þann 24. apríl 2013) Tillaga um þóknun til stjórnarmanna Þóknun fyrir liðið ár Þóknun til stjórnarmanna fyrir liðið ár verði kr. 1.800.000, formaður fái þrefaldan hlut og varamaður hálfan hlut. Þóknun fyrir næsta ár Þóknun næsta árs til stjórnarmanna verði 150.000 kr. á mánuði, formaður fái tvöfaldan hlut og varamaður hálfan hlut. Kosning endurskoðanda Endurskoðunarfélag: KPMG ehf. Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin hlutum Aðalfundur veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkast við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi skal miða við síðasta skráða dagslokagengi á markaði áður en samningur er gerður. Kjör stjórnar Sjálfkjörið var í stjórn félagsins Aðalmenn: Kristján Loftsson,Halldór Teitsson, Jóhann Hjartarson, Hanna Ásgeirsdóttir, Rannveig Rist. Varamaður: Ingibjörg Björnsdóttir. |
|||
|