2017-01-02 13:44:07 CET

2017-01-02 13:44:07 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning Sjóvá um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun



Í viku 52 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 1.038.132 eigin hluti að
kaupverði 15.675.793 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: 

Dagsetning      Tími  Keyptir hlutir  Viðskiptaverð (gengi)  Kaupverð (kr.)
---------------------------------------------------------------------------
---------------------------------------------------------------------------
27.12.2016  14:24:32          19.066                  15,10         287.897
28.12.2016  10:34:53          19.066                  15,10         287.987
---------------------------------------------------------------------------
29.12.2016  12:20:18         700.000                  15,10      10.570.000
---------------------------------------------------------------------------
29.12.2016  14:39:02         300.000                  15,10       4.530.000
---------------------------------------------------------------------------
Samtals                    1.038.132                             15.675.793
---------------------------------------------------------------------------



Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun
félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 3. október 2016. 

Sjóvá átti 55.392.317 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum
56.430.449 eigin hluti eða sem nemur 3,61% af útgefnum hlutum í félaginu. 

Sjóvá hefur keypt samtals 31.737.566 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem
nemur 2,03% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra
445.273.628 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 131.550.793
hlutum eða sem nemur 8,42% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó má
heildarkaupverð ekki vera hærra en 1.700.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í
gildi fram að aðalfundi félagsins 2017, en þó aldrei lengur en til 11. mars
2017, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. 

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um
hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og
markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í
endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“ 



Nánari upplýsingar veitir:

Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000